Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2026 16:33 Arnór Sigurðsson á ferðinni gegn Genk í Evrópudeildinni í lok janúar. Getty/Gabriel Calvino Alonso Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson var tekinn í yfirheyrslu hjá sænska miðlinum Fotbollskanalen þar sem ýmislegt áhugavert kom fram. Hann er staðráðinn í að snúa sem fyrst aftur í landsliðið og dreymir um að komast á stórmót.
Arnór spilaði síðast landsleik í september 2024 en þessi 26 ára Skagamaður hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla síðustu misseri. Þau höfðu áhrif á lok tíma hans hjá Blackburn og á síðasta ár eftir skiptin aftur til Svíþjóðar, þar sem hann var aðeins fimm sinnum í byrjunarliði Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra. Í yfirheyrslunni er Arnór spurður út í margt og til að mynda það hvort að hann ætti enn inni laun í Rússlandi eftir tíma sinn hjá CSKA Moskvu. Arnór var keyptur fyrir háar fjárhæðir til CSKA árið 2018 og skrifaði undir samning til fimm ára, en yfirgaf svo félagið þegar Rússar réðust inn í Úkraínu og var að láni hjá Venezia á Ítalíu, Norrköping í Svíþjóð og loks Blackburn. Versti tíminn á Ítalíu Arnór sagðist hafa fengið allt greitt hjá CSKA sem hann hefði átt rétt á. Þá var hann spurður hvort að Blackburn væri það félag sem hefði farið verst með hann, í ljósi þess að hann var í raun frystur út hjá félaginu undir lokin, en Arnór kvaðst ánægður með fyrri hluta tímans í Englandi og nefndi að dvölin hjá Venezia hefði verið verri. „Við vorum margir leikmenn þar. Ég held yfir 30 leikmenn og ég var þarna að láni. Það var margt sem var ekki í lagi, innan sem utan vallar. Ég veit að ég var ekki einn um að finnast það. Til dæmis talaði ég eiginlega aldrei við þjálfarann, heldur var manni sagt að þjálfarinn hefði sagt eitthvað og svo reyndist það ekki rétt. Það var mikið um eitthvað svoleiðis,“ sagði Arnór. Arnór Sigurðsson gat lítið beitt sér með Malmö á síðustu leiktíð þar sem meiðsli settu stórt strik í reikninginn.Getty/Michael Campanella Dreymir um stórmót og hlakkar til að snúa aftur Þá tjáði hann sig um íslenska landsliðið en Arnór hefur leikið 34 A-landsleiki á sínum ferli. Meiðsli hafa hins vegar komið í veg fyrir að hann geti spilað sinn fyrsta leik fyrir sveitunga sinn Arnar Gunnlaugsson, og Arnór segir það erfitt að vera ekki með landsliðinu: „Klárlega. Við vorum líka nálægt því að komast á EM svo það var erfitt. Ég missti af september, október og nóvember í fyrra vegna meiðsla, svo það var erfitt. Við erum með svo gott lið með marga spennandi leikmenn að koma upp, og nýjan þjálfara, svo ég hlakka til að snúa aftur,“ sagði Arnór og draumur hans er að spila á stórmóti: „Já, ég myndi segja það. Ég er búinn að spila í Meistaradeild Evrópu, sem var draumurinn þegar ég var lítill. Það væri geggjað að spila á EM eða HM fyrir Ísland.“
Sænski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira