Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. febrúar 2026 16:59 Kiernan Dewsbury-Hall skoraði sigurmark Everton. Þrír leikir fóru fram síðdegis í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Bournemouth - Aston Villa 1-1 Bournemouth og Aston Villa gerðu 1-1 jafntefli. Morgan Rogers tók forystuna fyrir gestina í fyrri hálfleik en Rayan skoraði snilldarmark í seinni hálfleik sem jafnaði metin. Bournemouth var betri aðilinn fyrstu tuttugu mínúturnar og var komið með akkúrat 1,00 vænt mark (xG) þegar, þvert gegn gangi leiksins, Aston Villa tók forystuna. Morgan Rogers skoraði markið sem braut ísinn þegar hann þrumaði boltanum í þaknetið eftir gott spil á hægri kantinum og stoðsendingu Jadon Sancho. Þetta var mikill hitaleikur og menn tókust vel á, meðal þeirra voru Emi Buendia og Alex Jimenez, sem fengu sitt hvort gula spjaldið fyrir sinn þátt í áflogunum. Bournemouth jafnaði síðan metin í upphafi seinni hálfleiks eftir glæsilegan einleik Brasilíumannsins Rayan, sem sólaði sig framhjá varnarmönnum og skildi Lucas Digne eftir í rykinu áður en hann potaði boltanum í nærhornið. Dómarinn dæmdi síðan vítaspyrnu fyrir Bournemouth, en eftir myndbandsskoðun kom í ljós að brotið var fyrir utan. Heimamenn svekktu sig á því en héldu áfram að sækja og voru líklegri til að skora sigurmarkið. Það tókst þeim hins vegar ekki og jafntefli varð niðurstaðan. Fulham - Everton 1-2 Fulham komst yfir gegn Everton en þurfti að sætta sig við 1-2 tap. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og færi á báða bóga en Fulham tók forystuna á átjándu mínútu. Markið skráist sem sjálfsmark. Raul Jimenez átti skot sem var varið, en boltinn skoppaði svo í varnarmanninn Vitaliy Mykolenko og þaðan í netið. Eftir það voru heimamenn mun hættulegri, Jimenez skaut rétt framhjá og Emile Smith-Rowe átti skot í slánna, en staðan stóð enn 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Gestirnir sneru leiknum síðan algjörlega við í seinni hálfleik. Mykolenko bætti upp fyrir óheppilega sjálfsmarkið með því að leggja upp jöfnunarmark Everton, fyrir Kiernan Dewsbury-Hall sem kláraði af krafti. Bernd Leno, markmaður Fulham, varð síðan skúrkur dagsins þegar hann ætlaði að kýla hornspyrnu burt undir lok leiks en setti boltann óvart í eigið net. Leno var undir pressu sóknarmanna og bað um brot en fékk ekkert fyrir sinn snúð. Burnley - West Ham 0-2 West Ham sótti gríðarmikilvægan sigur gegn Burnley á Turf Moor. Gestirnir höfðu alla yfirburði í upphafi og það kom ekki mikið á óvart þegar stuðningsmenn Burnley bauluðu liðið af velli eftir fyrri hálfleikinn. West Ham var þá komið með tveggja marka forystu. Crysencio Summerville skoraði fyrra markið á 13. mínútu eftir frábæra stungusendingu frá Mateus Fernandes. Valentín Castellanos tvöfaldaði svo forystuna á 26. mínútu eftir stoðsendingu El Hadji Diouf. Í seinni hálfleik vöknuðu heimamenn til lífsins og fóru að ógna marki West Ham af miklum krafti, raunar var ótrúlegt að Burnley hafi ekki minnkað muninn í upphafi seinni hálfleiks. En eftir þessa orkumiklu byrjun á seinni hálfleik hægðist aðeins á leiknum og West Ham sigldi sigrinum örugglega í höfn. Sigurinn var gríðarmikilvægur fyrir West Ham, sem situr í 18. sæti deildarinnar og er þremur stigum frá Nottingham Forest sem tapaði sínum leik í gærkvöldi. Burnley er hins vegar í mun verri stöðu í 19. sætinu, átta stigum frá West Ham.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Collin Pryor í Álftanes Körfubolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Sjá meira