Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 09:46 Kristján Kristjánsson stýrir Sprengisandi á Bylgjunni alla sunnudaga milli 10 og 12. Vísir Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti. Viðfangsefni dagsins eru alþjóðmál, leikskólamál og Epstein skjölin.
Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur, mætir fyrstur til að ræða Epstein-skjölin sem hafa mikið verið til umfjöllunar undanfarnar vikur. Þar mun hann ræða um hvaða ályktanir megi draga af skjölunum, vinfengi Epstein við valdafólk úr öllum áttum og hver áhrif birtingar skjalanna geta orðið. Efnahagsmálin eru einnig á dagskrá og munu Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, dósent við Háskóla Íslands, ræða stöðu mála. Þeir verða spurðir hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af háum vöxtum og verðbólgu. Atvinnuleysi, einkaneysla og hækkun opinberra aðila á gjöldum verður einnig rætt. Geir Guðmundsson verkfræðingur og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, taka fyrir alþjóða- og loftslagsmál. EST-kerfið, sem talið er vera meginverkfæri Evrópusambandsins til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að krefja fyrirtæki um greiðslur fyrir útblástur sinn, verður rætt og hvort Íslendingar fái áframhaldandi undanþágur. Viðskiptaráð krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda en Geir telur kerfið virka eins og það eigi að gera. Að lokum ræða Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ástand leikskólamála. Í vikunni sendu 63 leikskólastjórar bréf til Reykjavíkurborgar þar sem krafist var tafarlausra umbóta í rekstri leikskóla. Leikskólastjórnarnir segja ekki lengur hægt að vinna undir núverandi kringumstæðum. Þátturinn hefst klukkan tíu og er í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan eða á vef Bylgjunnar.
Sprengisandur Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Sjá meira