Þrír í haldi vegna stunguárásar í miðbænum Lovísa Arnardóttir skrifar 8. febrúar 2026 20:02 Lögreglan handtók þrjá vegna árásarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint og er úr safni. Vísir/Kolbeinn Tumi Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Lögregla vinni nú að því að safna að sér myndefni og gögnum um árásina.
Fjallað var um það fyrr í dag að karlmaður hefði verið handtekinn á þriðja tímanum í dag vegna árásarinnar en lögregla hafði leitað árásarmannsins frá því í nótt. Einnig kom fram að árásarmaður og þolandi væru báðir á þrítugsaldri og að ekki væri vitað um nein tengsl þeirra á milli. Sá síðarnefndi var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús í nótt en útskrifaðist þaðan snemma í morgun. „Það eru þrír í haldi. Miðað við það sem við höfum núna eru engin stórkostleg tengsl þar á milli,“ segir Elín Agnes spurð um tengsl á milli þolanda og gerenda. Hún segir lögreglu vinna að því að fara yfir gögn og myndefni til að fá skýrari mynd á málið. Hún segir vitni að árásinni sem lögregla hafi rætt við. „Eins og staðan er núna erum við með þrjá einstaklinga í haldi í kjölfar þessarar aðgerðar. Þeir voru allir handteknir í dag,“ segir Elín Agnes. Á vef DV segir að einn þeirra handteknu sé Gabríel Douane. Gabríel Douane á að baki langan sakaferil þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur verið sakfelldur fyrir ítrekuð ofbeldisbrot auk tveggja annarra líkamsárása í fangelsinu á Hólmsheiði. Samkvæmt frétt DV losnaði hann úr fangelsi fyrir rúmri viku síðan. Höfðu upplýsingar um hverjir hefðu verið að verki Elín Agnes vill ekki staðfesta að Gabríel sé einn þeirra grunuðu. Hún segir lögreglu hafa haft upplýsingar og hafa fengið vísbendingar um það hverjir þeirra grunuðu væru áður en þeir voru handteknir. Fram kom í fréttum í dag að sá grunaði hefði verið handtekinn í íbúð í Reykjavík og að hann hefði þekkst á myndbandsupptöku.
Lögreglumál Reykjavík Næturlíf Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Fleiri fréttir Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent