Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Eiður Þór Árnason skrifar 9. febrúar 2026 20:48 Kórinn í Kópavogi. Vísir/vilhelm Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK sem fram fór í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Annar maður sat í gæsluvarðhaldi í um tvo sólarhringa grunaður um verknaðinn en var síðan sleppt úr haldi lögreglu.
Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu en DV greindi fyrst frá málinu. Um alvarlega líkamsárás hafi verið að ræða. Elín segir manninn alvarlega slasaðan en hann sé ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Hún segir málið til rannsóknar og vill ekki segja til um það hvort aftur verði farið fram á gæsluvarðhald yfir meintum árásarmanni. Um tíma í lífshættu Samkvæmt heimildum fréttastofu er brotaþoli, sem er þriggja barna fjölskyldufaðir, með höfuðáverka og var um tíma talinn í lífshættu. Hann er nú í hágæslu á Landspítala, sem er millistig gjörgæslu og almennrar legudeildar, tíu dögum eftir árásina og allt útlit fyrir að hann hljóti varanlegan skaða. Samkvæmt heimildum átti árásin sér stað um ellefuleytið föstudagskvöldið 30. janúar á áðurnefndu þorrablóti HK og var fjöldi vitna að árásinni. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Kópavogur Lögreglumál HK Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira