„Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. febrúar 2026 13:02 Dögg er klínískur næringarfræðingur. Eru kolvetni rót alls ills? Er sykur það versta sem þú lætur ofan í þig? Hvað með jurtaolíurnar - skaða þær virkilega líkamann? Mýturnar um mataræði og næringu eru mýmargar og því settist Lilja Katrín Gunnarsdóttir niður með Dögg Guðmundsdóttur, klínískum næringarfræðingi, til að fara yfir þær nokkrar.
Dögg vinnur á Landspítalanum en rekur einnig sína eigin þjónustu sem heitir Nutriment og gefur alls kyns góð ráð og veitir fræðslu um næringu á samfélagsmiðlum. Hún segir ekki vanþörf á því þar sem upplýsingaóreiðan sé gríðarleg þegar kemur að mat, næringu og heilsu. Hins vegar segir Dögg það afar jákvætt hve opið fólk er fyrir góðum ráðum sem byggja á gagnreyndum vísindum, enda klínísk næringarfræði fimm ára háskólanám. Við förum yfir víðan völl í Íslandi í dag með Dögg, röbbum meðal annars um jurtaolíur sem hafa orðið að hápólitísku deilumáli innan næringarfræðinnar, hvort ketó sé besta mataræði í heimi og hvort talan á vigtinni endurspegli heilsu og hreysti. Mikil upplýsingaóreiða „Það er stórfengleg upplýsingaóreiða og stundum veit ég ekki alveg í hvorn fótinn ég á að stíga. Það er ótrúlegt en sem betur fer eru flest allir mjög meðtækilegir fyrir því að fá bara svona rétta leiðsögn, að fá sterkar og góðar upplýsingar byggðar á vísindalegum grunni,“ segir Dögg og þá berst talið að kolvetnum sem margir tala í raun um sem djöfulinn sjálfan. View this post on Instagram „Þetta hefur verið svolítið langvarandi mýta og svolítið leiðinleg mýta af því að kolvetni eru geggjuð. En það sem ég hef oft tekið eftir þegar fólk talar um kolvetni, þá er það rosalega mikið að tala um einföld kolvetni, það er að segja gos og nammi og kökur og allt þetta, sem við eigum að neyta í hófi, þau eru ekkert slæm svo lengi sem við neytum þeirra í hófi. Svo eru öll þessi góðu kolvetni. Það eru þessi trefjaríku og flóknu kolvetni eins og til dæmis bara heilkornavörur, bygg, hafrar. Trefjar í kolvetnum til dæmis, minnka líkur á ristilkrabbameini, þær draga úr líkum á sykursýki 2 til dæmis og hafa jákvæð áhrif á hjartaheilsuna okkar og bara ótal margt annað.“ Dögg talar í framhaldinu nánar um matarræði og hverju einstaklingurinn ætlar sér að ná fram með breyttu matarræði. Fitan gegn kolvetnum „Það er mjög mikilvægt að staldra aðeins við og skoða af hverju? Ertu að fara að grennast, hver er tilgangurinn með því og hvernig ætlarðu að fara að því? Eins og til dæmis ef þú ætlar að borða miklu minna heldur en þú nauðsynlega þarft á að halda, að þá ertu bara að vinna gegn heilsunni þinni og það er nú sennilegast ekki markmiðið hjá flestum. Það sem rannsóknir eru að reyna að sýna okkur, það er langbest að vera að borða jafnt og þétt yfir daginn. Það eru bara þrjár góðar máltíðir, góðan morgunmat til þess að byrja daginn vel, góðan hádegismat, góðan kvöldmat og svo millimál þess á milli.“ Þá berst talið að fitunni. „Fita er eitt af orkuefnunum sem við þurfum í líkamann og það sem mér finnst svolítið áhugavert er það að það eru alltaf þessar togstreitur, alltaf verið svona að setja saman þessi orkuefni á móti hvert öðru, eitt er betra en annað og svona, en við þurfum þau öll til þess að viðhalda bara heilbrigðri starfsemi líkamans. Það sem er með fituna er það að hún er sem sagt hitaeiningaríkari heldur en kolvetnin, það er að segja hún gefur okkur meiri orku heldur en kolvetnin og það er ekkert slæmt. Við þurfum á fitu að halda, hún er mjög nauðsynlegur hluti af okkar líkamlegu starfsemi. Ég myndi frekar bara segja vandaðu valið á fitugjöfum þínum.“ Ekki missa af fimmtán mýtum um mataræði í Íslandi í dag hér fyrir neðan.
Ísland í dag Heilsa Matarást Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira