Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Creditinfo 12. febrúar 2026 09:10 Kuratech og Creditinfo innsigla samstarf en hugbúnaðarlausn Kuratech hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot í aðdraganda gjaldþrotaskipta Kuratech og Creditinfo hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér aðgengi að gögnum og upplýsingum úr gagnagrunnum Creditinfo í lausnum Kuratech.
Kuratech er íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar lausnir fyrir skiptastjóra þrotabúa. Hugbúnaðarlausn Kuratech hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot í aðdraganda gjaldþrotaskipta auk þess að sjálfvirknivæða margvíslega handavinnu í gjaldþrotaskiptum. Þar sem skiptastjórar hafa takmarkaðan tíma til að rannsaka flókin þrotabú í þaula, notar Kuratech nýjustu tækni í gagnagreiningu og gervigreind til að rýna í fjárhagsupplýsingar, flagga grunsamlegum viðskiptum og finna verðmæti sem annars færu forgörðum, allt á brotabroti af þeim tíma sem handvirk vinna tekur. Kristján Óli, framkvæmdastjóri Kuratech, er ánægður með samstarfið og segir það mikilvægan lið í framtíðaráformum félagsins: Samstarf Creditinfo og Kuratech styrkir lausnina enn frekar og gerir skiptastjórum kleift að vinna hraðar og með meiri innsýn. „Auk þess greiðir Creditinfo leið Kuratech á erlenda markaði með aðgangi að sambærilegum gögnum í fjölmörgum ríkjum utan Íslands. Þetta samstarf er því mikilvægur liður í því að gera lausn Kuratech að alþjóðlegri vöru.“ Hreinn Bergs, viðskiptastjóri hjá Creditinfo, segir það sérstakt ánægjuefni að geta stutt við nýsköpun á Íslandi: „Það gleður okkur hjá Creditinfo að geta stutt við Kuratech og þá öflugu nýsköpun sem félagið stendur að. Við höfum fulla trú á því að gagnalindir okkar og lausnir muni nýtast vel við að einfalda vinnslu þrotabúa og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins. Samstarfið hefur verið afar ánægjulegt og við hlökkum til framhaldsins.“
Gjaldþrot Tækni Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira