Bud Cort látinn eftir langvinn veikindi Lovísa Arnardóttir skrifar 11. febrúar 2026 22:50 Bud Cort árið 2016 á frumsýningu. Vísir/Getty Leikarinn Bud Cort er látinn 77 ára að aldri. Cort var þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanmyndinni Harold and Maude. Samkvæmt Variety lést Cort í Connecticut eftir langvinn veikindi.
Cort lék í Harold and Maude ungan mann með dauðann á heilanum sem þróar samband með 79 ára gamalli konu sem lifði helförina af, leikin af Ruth Gordon. Hann fékk tilnefningar til Golden Globe- og Bafta-verðlauna fyrir leik sinn. Frétt Variety. Myndin fékk í fyrstu ekki góðar viðtökur gagnrýnenda eða áhorfenda en varð síðar að „költ“-klassík og var sett á lista Bandarísku kvikmyndastofnunarinnar yfir fyndnustu myndir sem gerðar hafa verið. Árið 2014 sagði Cort við Guardian að hlutverkið hefði verið „blessun og bölvun“ þar sem það leiddi til þess að hann var fastur í ákveðnu hlutverki og fékk aðeins boð um að leika furðufugla. Hann hafnaði hlutverki Billy Bibbit í One Flew Over the Cuckoo’s Nest þar sem hann vildi aðalhlutverkið og eftir að Jack Nicholson var ráðinn bað hann aftur um það en þá var það of seint. Á áttunda áratugnum lék Cort í gamanmyndinni Why Shoot the Teacher? og sjónvarpsmynd byggðri á Bernice Bobs Her Hair eftir F. Scott Fitzgerald með Shelley Duvall. Árið 1979 lenti hann í bílslysi sem olli honum alvarlegum meiðslum og þurfti hann að gangast undir lýtaaðgerðir. Hann byrjaði svo að leika aftur á níunda áratugnum og lék til dæmis í rómantísku myndinni Love Letters með Jamie Lee Curtis í aðalhlutverki og hryllingsmyndinni Invaders from Mars eftir Tobe Hooper. Á tíunda áratugnum lék hann í Dogma eftir Kevin Smith og hinsegin-klassíkinni But I’m a Cheerleader áður en hann birtist síðar í myndum á borð við Coyote Ugly, The Number 23 og The Life Aquatic with Steve Zissou eftir Wes Anderson. Meðal sjónvarpsþátta sem hann kom fram í voru Ugly Betty, Criminal Minds og Arrested Development. Þá talsetti hann fjölda teiknimynda eins og Batman, The Mask og Superman. Cort lenti í öðru bílslysi árið 2011 þar sem handleggur hans rifnaði næstum af sem gerði honum erfitt fyrir að finna vinnu.
Bandaríkin Hollywood Andlát Bíó og sjónvarp Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira