Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2026 16:18 James Van Der Beek var 48 ára þegar hann lést. Vísir/Getty Fjöldi leikara hefur í dag minnst leikarans James Van Der Beek sem féll frá í gærmorgun. Van Der Beek hafði háð baráttu við krabbamein í um þrjú ár. Hann var þekktastur fyrir leik sinn í unglingaþáttunum Dawson‘s Creek frá 1998 til 2003.
Van Der Beek lætur eftir sig eiginkonu sína, Kimberly, og sex börn sín, fjórar dætur og tvo syni. Greint var frá því í dag að fjársöfnun til stuðnings fjölskyldunni hefði farið fram úr björtustu vonum. Efnt var til söfnunar til handa eiginkonu van der Beek og barna þeirra á Go Fund Me í kjölfarið en hjónin höfðu verið mjög opin með það að krabbameinsmeðferðin hefði tekið sinn toll fjárhagslega og þá hafði van der Beek neyðst til að selja ýmsa muni sem hann hafði varðveitt frá dögum sínum sem leikari, meðal annars í Dawson's Creek. Þegar fréttin er skrifuð er söfnunin að nálgast markmið sitt sem er 1,5 milljón Bandaríkjadala. Það samsvarar um 183 milljónum íslenskra króna. Samleikarar hans úr Dawson‘s Creek hafa margir birt í dag og í gærkvöldi minningarorð um vin sinn. Leikkonan Katie Holmes birti handskrifað bréf á Instagram þar sem hún þakkaði fyrir vináttu hans og vottaði fjölskyldu hans samúð. View this post on Instagram A post shared by Katie Holmes (@katieholmes) Busy Phillips, sem einnig lék í Dawsons‘s Creek, minntist á söfnunina um leið og hún minntist vinar síns. Hún sagðist sorgmædd og með brotið hjarta. „Hans verður saknað að eilífu,“ sagði hún í færslu sinni. Leikkonan Mary-Margaret Humes, sem lék móður hans í þáttunum, birti tvær myndir af þeim saman og sagðist orðlaus. Hún sagðist hafa talað við hann fyrir aðeins nokkrum dögum og að samtalið myndi að eilífu sitja í henni. View this post on Instagram A post shared by Mary-Margaret Humes (@thereal_marymargarethumes) Chad Michael Murray, sem lék lítið hlutverk í þáttunum og síðar í One Tree Hill, sendi samúðarkveðjur til eiginkonu hans og sagði James hafa veitt öllum innblástur sem þekktu hann. Sasha Alexander, sem lék einnig í þáttunum, deildi fjölda mynda af þeim saman og Monica Keena, sem lék Abby Morgan í þáttunum, deildi mynd af þeim saman. View this post on Instagram A post shared by Sasha Alexander (@sashaalexander) Fjöldi leikara og leikstjóra sem ekki léku í þáttunum hefur einnig vottað honum virðingu sína. Leikkonan Alyssa Milano, sem lék í Charmed, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að James væri „einn af þeim sjaldgæfu“ í bransanum og að hann hafi alltaf verið til staðar fyrir fólkið sitt. View this post on Instagram A post shared by Alyssa Milano (@milano_alyssa) Melissa Joan Hart, eða nornin Sabrina, sagðist vera með brotið hjarta og rifjaði það upp að James hefði verið fyrsti strákurinn sem hún kyssti á skjánum í þáttunum Clarissa Explains it all. View this post on Instagram A post shared by Melissa Joan Hart (@melissajoanhart) Leikstjórinn Kevin Smith minntist á það í færslu að hann hefði fyrst hitt Van Der Beek fyrir 25 árum við tökur kvikmyndarinnar Jay and Silent Bob. Hann hafi leitað til Van Der Beek að leika ýkta útgáfu af sjálfum sér í myndinni og hann tekið vel í. 18 árum síðar hafi hann svo aftur samþykkt að vera með í framhaldi myndarinnar. View this post on Instagram A post shared by Kevin Smith (@thatkevinsmith) Þá minntist leikkonan Selma Blair hans í færslu á samfélagsmiðlum. Hún sagði þau hafa „alist upp“ á sama tíma í bransanum í Hollywood og að hún hafi alltaf dáðst að honum og svo enn frekar þegar hún hitti eiginkonu hans og börn. View this post on Instagram A post shared by Selma Blair (@selmablair)
Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira