Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Kjartan Kjartansson skrifar 13. febrúar 2026 13:52 Lyfjastofnun Bandaríkjanna vildi ekki einu sinni taka umsókn Maderna um markaðsleyfi fyrir flensusprautu til skoðunar. AP Bandaríska lyfjastofnunin hafnaði því að taka fyrir umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um leyfi fyrir nýja tegund flensusprautu. Fyrirtækið segist ætla að hætta fjárfestingu í öðrum lyfjum ef það getur ekki treyst á að koma þeim inn á bandarískan markað.
Bóluefni Moderna gegn inflúensu er það fyrsta sem er þróað með svonefndri mRNA-tækni. Nóbelsverðlaunin í læknisfræði árið 2023 fóru til vísindamanna sem voru frumkvöðlar í þróun tækninnar. Moderna lagði fram umsókn um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum í ágúst. Lyfjastofnun Bandaríkjanna hafnaði því hins vegar að taka umsóknina til umfjöllunar á þeim forsendum að virkni bóluefnisins hefði ekki verið borin saman við tiltekið efni sem er mælt með fyrir eldra fólk í 40.000 manna rannsókn Moderna á bóluefninu. Starfsmenn lyfjastofnunarinnar eru sagðir hafa ætlað að taka umsóknina til efnislegrar umfjöllunar en að Vinay Prasad, yfirmaður CBER, rannsóknastofnunar hennar, hefði tekið fram fyrir hendurnar á þeim og hafnaði umsókninni sjálfur. AP-fréttastofan segir að það sé afar fátítt að lyfjastofnunin neiti að taka umsóknir til skoðunar, sérstaklega fyrir ný bóluefni. Yfirleitt taki ferlið fleiri mánuði og jafnvel ár. Segjast hafa fengið grænt ljós frá stofnuninni Eftir að fréttir bárust af því að lyfjastofnunin hefði neitað að fjalla um umsókn Moderna sagði embættismaður við hana sem neitaði að koma fram undir nafni við bandaríska fjölmiðla að lyfjafyrirtækið hefði ekki fylgt fyrirmælum hennar um rannsókn á bóluefninu. Virkni þess hefði verið borin saman við „ófullnægjandi“ efni til að láta það líta betur út en ella. Stephane Bancel, forstjóri Moderna, sagði lyfjastofnunina ekki hafa gert neinar athugasemdir við virkni eða öryggi bóluefnisins. Fyrirtækið hafi talið sig hafa grænt ljós frá stofnuninni um aðferðina sem var beitt í lokahluta rannsóknarinnar á bóluefninu. „Það ætti ekki að vera umdeilt að fjalla ítarlega um umsóknum um flensusprautu sem notast við bóluefni með leyfi frá Lyfjastofnun Bandaríkjanna til samanburðar í rannsókn sem var rædd og samþykkt með CBER áður en hún hófst,“ sagði Bancel í yfirlýsingu. Fulltrúar fyrirtækisins hafa krafist neyðarfundar með yfirmönnum lyfjastofnunarinnar. Moderna hefur þegar sótt um leyfi fyrir flensusprautunni í Evrópu, Kanada og Ástralíu. Andstæðingar bóluefna við stjórnvölinn Lyfjastofnun Bandaríkjanna heyrir undir heilbrigisráðuneytið sem Robert F. Kennedy yngri stýrir. Hann hefur verið einn helsti andstæðingur bóluefna í heiminum um árabil. Að undirlagi Kennedy hafa bandarísk heilbrigðisyfirvöld breytt ráðleggingum um bóluefni og gefið ranglega í skyn að tengsl séu á milli einhverfu og bóluefna. Þau hættu einnig að fjármagna þróun mRNA-bóluefna sem eru andstæðingum bólusetninga sérstakur þyrnir í augum. Þrátt fyrir að mRNA-tæknin hafi gert vísindamönnum kleift að þróa bóluefni gegn nýju afbrigði kórónuveirunnar sem olli heimsfaraldri árið 2020 á mettíma og bjargað ótöldum mannslífum hefur fjöldi samsæriskenninga verið á kreiki um mRNA-bóluefni. Pólitísk skautun í Bandaríkjunum blés lífi í slíkar samsæriskenningar. Faraldurinn blossaði upp á fyrra kjörtímabili Donalds Trump Bandaríkjaforseta og þrætti hann og Repúblikanaflokkur hans fyrir alvarleika hans og nauðsyn sóttvarnaraðgerða. Sú skautun leiddi til þess að bóluefnin sem komu fram gegn veirunni urðu að pólitísku bitbeini, jafnvel þó að ríkisstjórn Trump hefði styrkt þróun þeirra. Repúblikanar voru þannig markvert ólíklegri til þess að bólusetja sig gegn veirunni en demókratar.
Lyf Bólusetningar Heilbrigðismál Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin Atvinnulíf Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Viðskipti innlent Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Samstarf Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Fleiri fréttir Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Trump hækkar tolla á öll lönd Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Einn stofnenda ASOS fannst látinn Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Sjá meira