Handbolti

Einar Bragi öflugur í mikil­vægum sigri í toppslag

Aron Guðmundsson skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður Kristianstad.
Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður Kristianstad.

Einar Bragi Aðalsteinsson fór mikinn er lið hans Kristianstad hafði betur gegn Malmö í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld, lokatölur 29-33. 

Einar Bragi skoraði alls fimm mörk í leik kvöldsins og lagði upp tvö til viðbótar í sigri Kristianstad sem var afar mikilvægur. Með honum nær liðið að búa sér til forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar og er þar með þremur stigum meira en Malmö sem á þó leik til góða á Kristianstad. 

Þá kom Birgir Steinn Jónsson alls að ellefu mörkum í liði Savehof í kvöld, skoraði fjögur, lagði upp sjö og átti heilt yfir frábæran leik. Sigur liðsins gerir það að verkum að Savehof vermir nú fjórða sæti deildarinnar og er þar með 25 stig en hefur spilað fleiri leiki en liðin í kringum sig. 

Arnar Birkir Halfdánsson kom þá að þremur mörkum í liði Amo sem mátti sætta sig við fimm marka tap gegn Önnereds, 27-32. Arnar skoraði eitt mark í leiknum og átti tvær stoðsendingar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×