Gífurlega þýðingarmikill sigur HK gegn Þór Aron Guðmundsson skrifar 13. febrúar 2026 20:36 Halldór Jóhann er þjálfari HK Vísir/Pawel HK vann í kvöld afar mikilvægan sigur á liði Þórs frá Akureyri í fallbaráttuslag Olís deildar karla í handbolta. Lokatölur urðu 36-31.
Sigurinn er mikilvægur í meira lagi en fyrir leik var HK í 10.sæti með tíu stig en Þórsarar í 11.sæti með einu stigi minna. Leikurinn var jafn framan af og þegar að fyrri hálfleikur rann sitt skeið munaði aðeins einu marki á liðunum, 20-19 HK í vil. Seinni hálfleikur byrjaði líkt og þeim fyrri lauk, hvorugu liðinu tókst að slíta sér frá hinu en þegar að rétt rúmlega tíu mínútur eftir lifðu leiks gengu HK-ingar á lagið. Byggðu upp forskot á skömmum tíma sem Þórsurum tókst ekki að brúa. Svo fór að HK náði að sigla heim fimm marka sigri, 36-31. Sigur sem er afar mikilvægur fyrir liðið í baráttunni við botn deildarinnar. Með sigrinum slítur HK sig frá neðstu tveimur liðum deildarinnar, Þór og ÍR, stekkur upp í áttunda sæti þar sem liðið situr með tólf stig. Þórsarar eru áfram í 11.sæti með níu stig. Haukur Ingi Hauksson fór hamförum í liði HK í kvöld og skoraði ellefu mörk og Brynjar Vignir Sigurjónsson átti síðan frábæran leik í marki liðsins. Hann varði alls fjórtán skot og var með markvörslu upp á tæp 44 prósent.
Olís-deild karla HK Þór Akureyri Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira