Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið Stefán Árni Pálsson skrifar 16. febrúar 2026 18:01 Ynja Mist gerir það gott í Kaupmannahöfn. „Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn.
Ynja hefur núna rekið kökufyrirtækið í sjö ár og mamma hennar, sem starfar sem barnasálfræðingur á Íslandi, er orðin fjármálastjóri fyrirtækisins í hjáverkum. „Það er auðvelt að stofna fyrirtæki en það er bara mjög erfitt að láta það ganga upp,“ segir Ynja í spjalli við Lóu Pind Aldísardóttur en þau Ívar Kristján Ívarsson myndatökumaður heimsóttu Ynju og fjölskyldu til Köben fyrir 5. þátt af þáttaröðinni Hvar er best að búa? Ynja féll fyrir aðalkökuskreyti fyrirtækisins, honum Aziz frá Azerbaísjan, og þau eiga nú 2 kornunga syni - sem Ynja telur líklegt að séu einu íslensk-azersku börnin í heiminum. Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. íslenskar konur sem féllu fyrir ítölsku eyjalífi, unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit, konu á miðjum aldri sem fann ástina í örmum Spánverja á Djúpavogi sem leiddi þau til Andalúsíu þar sem við fylgjumst með brúðkaupi þeirra. Og loks kynnumst við hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá brot úr þættinum sem fór inn á streymiveituna Sýn+ í gær og verður seinna sýndur í línulegri dagskrá á Sýn. Klippa: Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, aðalmyndatökumaður seríunnar er Ívar Kristján Ívarsson og klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Íslendingar erlendis Danmörk Ástin og lífið Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira