Robert Duvall látinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 18:09 Robert Duvall með óskarsverðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir myndina Tender Mercies. Getty/Bill Nation Bandaríski leikarinn Robert Duvall er látinn, 95 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Virgina-fylki í Bandaríkjunum í gærkvöldi.
Luciana Duvall, eiginkona hans, greinir frá andlátinu á samfélagsmiðlum. „Í gær kvöddum við elsku eiginmanninn minn, dáðan vin og einn besta leikara okkar tíma. Bob lést á heimili okkar, umvafinn ást og umhyggju,“ skrifar hún á Facebook en TMZ greinir frá. Duvall er helst þekktur fyrir leik sinn í The Godfather og The Apostle. Hann hlaut fjölda verðlauna fyrir leik sinn, þar á meðal fern Golden Globes-verðlaun og Óskarsverðlaun fyrir besta leik í kvikmyndinni Tender Mercies. Herþjónustan heillaði ekki Duvall var fæddur í janúar 1931 í San Diego-borg í Kaliforníu. Faðir hans var í bandaríska sjóhernum og bjóst við því að sonurinn myndi fylgja í fótspor hans. Duvall sinnti herskyldu í tvö ár en flutti síðan til New York-borgar til að stunda leiklistarnám. Meðal samnemenda hans voru Dustin Hoffman og Gene Hackman, sem síðar urðu einnig frægir leikarar. Hann hóf leiklistarferil sinn á sviðinu er hann varði einu sumri í að leika í Gateway Playhouse-leikhúsinu. Sú reynsla leiddi til þess að hann fékk hlutverk sem Boo Radley í kvikmyndinni um bókina To Kill a Mockingbird árið 1962. Duvall lék einnig í sjónvarpsþáttum á við Naked City og Alfred Hitchcock Presents en frammistaða hans í To Kill a Mockingbird leiddi til þess að hann fékk hlutverk í kvikmyndunum The Chase, Bullitt og True Grit. Fjöldi verðlauna í safnið Duvall var fyrst tilnefndur til Óskarsverðlaunanna árið 1973 fyrir leik sinn sem Tom Hagen í The Godfather. Hann var aftur tilnefndur til verðlaunanna árið 1984 sem besti leikarinn í kvikmyndinni Tender Mercies. Þar túlkaði hann hlutverk söngvarans Mac Sledge sem átti við áfengisvandamál að stríða og varð sú túlkun til þess að hann hreppti verðlaunin. Leikur hans í kvikmyndinni Apocalypse Now er mörgum minnisstæður og skaut honum upp á stjörnuhimininn. Auk Óskarsverðlaunanna hlaut Duvall British Academy Film Award, tvenn Emmy-verðlaun, fjögur Golden Globes-verðlaun og Screen Actors Guild-verðlaun á ferlinum. Fjórar eiginkonur en engin börn Duvall gifti sig fjórum sinnum en eignaðist engin börn. Hann giftist Barböru Benjamin árið 1964 en þau kynntust við tökur á To Kill a Mockingbird. Leiðir þeirra skildu árið 1975 og var hann svo giftur Gail Youngs í fjögur ár, 1982 til 1986. Þriðja hjónaband hans var með Sharon Brophy árin 1991 til 1995. Árið 2005 gekk Duvall í fjórða hjónabandið með Luciana Pedraza en þau hittust fyrst í Argentínu árið 1997. Það var rúmlega fjörutíu ára aldursmunur á þeim hjónum en áttu þau bæði afmæli þann 5. janúar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Andlát Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira