Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. febrúar 2026 20:04 Guðný Halla með tvo af hvolpunum ellefu. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það er líf og fjör á sveitabæ í Landeyjunum þessa dagana því nýlega gaut íslenska tíkin Þekla ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi, sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti.
Hér erum við að tala um bæinn Búland í Austur-Landeyjum í Rangárþingi eystra þar sem Guðný Halla er með ræktunina sína, sem kallast Gerpla en ræktunin gengur út á að rækta íslenska fjárhunda. Hvolparnir, sem eru að verða átta vikna eru allir mjög fjörugir og elska það að fá að leika sér úti með foreldrum sínum út í garði og ömmu þeirra reyndar líka. Íslenski fjárhundurinn er ein af elstu og hreinustu hundategundum Norðurlanda og eini upprunalegi hundurinn frá Íslandi. „Við erum að reyna að rækta inn vinnueðlið og út þetta gjamm. Íslenski fjárhundurinn er svo einstaklega skemmtilegur fyrir það að hann er svo blíður, hann gleymir mistökum og það er ekki hægt að hafa áhyggjur af börnum í kringum hann, hann elskar börn,” segir Guðný Halla. Ræktunin fer fram á bænum Búlandi í Austur-Landeyjum í Rangárþingi eystra þar sem Guðný Halla er með ræktunina sína, sem kallast Gerpla en ræktunin gengur út á að rækta íslenska fjárhunda.Magnús Hlynur Hreiðarsson En að koma með 11 hvolpa í goti, er það ekki ótrúlega vel gert eða hvað? „Ellefu er bara ekki til í heiminum því það hefur enginn komið frá sér 11 hvolpum lifandi,” segir Guðný. Guðný Halla segir að Þeklu hafi gengið ótrúlega vel að koma hvolpunum frá sér en hún gaut á jóladagsmorgun. Guðný Halla á líka pabba hvolpanna. Hvolparnir eru orðnir latir að sjúga mömmu sína en þá gefur Guðný Halla þeim lífrænan brodd úr fjósinu en 50 kýr eru á bænum þar sem framleiðsla á lífrænni mjólk fer fram. „Þeim finnst það æðislegt og verða stórir og stoltir af. Tíkin hefur ekki nóg fyrir þá en flestir hvolpanna fara frá okkur í næstu viku. Þeir eru að fara út um allt land og það eru tveir að fara til Frakklands og hugsanlega einn til Danmerkur,” segir Guðný Halla, stolt með hundana sína. Hvolparnir eru orðnir latir að sjúga mömmu sína en þá gefur Guðný Halla þeim lífrænan brodd úr fjósinu en 50 kýr eru á bænum þar sem framleiðsla á lífrænni mjólk fer fram.Magnús Hlynur Hreiðarsson Facebooksíða ræktunarinnar hjá Guðnýju Höllu
Rangárþing eystra Hundar Dýr Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira