Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Bjarki Sigurðsson skrifar 18. febrúar 2026 14:46 Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Forstjóri Landsvirkjunar segir ótrúlegt hversu fáar vatnsaflsvirkjanir komist í gegnum rammaáætlun en fagnar því að tvær nýjar virkjanir séu komnar í nýtingarflokk. Rangfærslur um umhverfisáhrif virkjana sem haldast í biðflokki gangi milli manna.
Bæði Holtavirkjun í Þjórsá og Skrokkölduvirkjun við Sprengisandsleið voru færðar í orkunýtingarflokk í rammaáætlun í gær. Það þýðir að svæðin þar eru talin betri til virkjana en aðrir staðir og hægt verður að byrja að rannsaka og sækja um leyfi fyrir uppbyggingu þar. Jóhann Páll Jóhannsson orkumálaráðherra sagði í gær aðeins eina vatnsaflsvirkjun hafa ratað í nýtingarflokk á síðustu tíu árum, svo þetta væri mikilvægt skref. Ótrúlega óvirkt kerfi Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir þetta mikil gleðitíðindi. „Þetta er ótrúlegt þegar maður horfir til baka hversu óvirkt þetta rammaáætlunarferli hefur verið, sem átti að vera sáttaferli. Það hefur ekki ein vatnsaflsvirkjun á síðustu fimmtán árum sem hefur farið í gegnum rammaáætlun verið byggð. Hvammsvirkjun verður sú fyrsta ef og þegar hún verður byggð. Þetta hefur tekið ótrúlega langan tíma ef maður horfir til baka,“ segir Hörður. Langt ferli fram undan Gangi allt vel má búast við því að framkvæmdir fyrir Holtavirkjun hefjist 2031 og nokkrum árum síðar fyrir Skrokkölduvirkjun. „Þetta er fyrsta skref í mjög löngu leyfisveitinga- og samráðsferli sem þarf að eiga sér stað. Núna getum við farið af stað í næstu skref sem eru að vinna að umhverfismati, vinna að leyfisveitingum og eiga samtal við hagsmunaaðila. Þannig það er langt og flókið ferli fram undan. Það er alls ekki þannig að nú höfum við leyfi til að fara í virkjunina, þetta stóra ferli er rétt að byrja,“ segir Hörður. Rangfærslur í umferð Verkefnastjórn rammaáætlunar lagði til að Kjalölduveita sunnan Þjórsárvera og virkjunarkostir í Héraðsvötnum í Skagafirði færu í verndarflokk en ráðherra lagði til að þeir héldu áfram í biðflokki. „Það var ákveðin hætta á að þær lentu í verndarflokki sem við teljum að hefðu verið mikil mistök, einfaldlega vegna þess að þær hafa að okkar mati ekki fengið nægilega vandaða umfjöllun. En vonandi komast þær fljótlega í nýtingarflokk. Það er mikið ánægjuefni að þessir góðu virkjanakostir með takmörkuð umhverfisáhrif séu skoðaðir áfram því því miður eru margar rangfærslur um áhrif þessara virkjana í umferð,“ segir Hörður.
Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira