Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. febrúar 2026 23:40 Rannsókn bendir til þess að tengiltvinnbílar eyði töluvert meira eldsneyti en haldið var. Getty Tengiltvinnbílar nota mun meira eldsneyti en framleiðendur slíkra bíla hafa viljað gangast við samkvæmt umfangsmikilli rannsókn á um milljón tengiltvinnbílum.
Guardian fjallar um rannsókn Fraunhofer-stofnunarinnar sem er talin sú umfangsmesta sinnar tegundar til þessa. Hún byggir á gögnum sem bárust þráðlaust frá tengiltvinnbílum hinna og þessa framleiðenda á meðan þeir voru í akstri. Bílarnir sem rannsóknin nær til voru allir framleiddir á árunum 2021 til 2023 en gögnin sem þeir sendu frá sér gerðu rannsakendum kleift að slá nákvæmri eldsneytisnotkun þeirra fastri. Tengiltvinnbílar ganga bæði á bensín- eða díselvél og rafhlöðu sem hægt er að hlaða. Þeir gefa ökumönnum því möguleikann á að skipta á milli rafknúins og bensínknúins akstur eftir aðstæðum og eru sömuleiðis þannig auglýstir sem sparsamir á eldsneyti. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Fraunhofer-stofnunarinnar þurfa tengiltvinnbílar að meðaltali sex lítra af eldsneyti á hverja hundrað kílómetra sem er um þrefalt meira en vottað er af Evrópusambandinu. Patrick Plötz hjá Fraunhofer-stofnuninni segir í viðtali við þýska miðilinn SWR að þá grunaði að brunahreyfillinn í tengiltvinnbílum færi mun oftar í gang en áður var talið. Þýskir tengiltvinnbílar voru meðal þeirra sem höfðu hæstu meðaleldsneytisnotkunina og þeirra á meðal voru tengiltvinnbílar af gerðinni Porsche þeir eyðslusömustu. Lægsta eldsneytisnotkunin var samkvæmt niðurstöðunum hjá ódýrari tengiltvinnbílaframleiðendum, í bílum frá Kia, Toyota, Ford og Renault, sem oft notuðu innan við einn lítra á 100 km, eða allt að 85% minna eldsneyti en Porsche.
Bílar Vistvænir bílar Rafmagn Bensín og olía Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira