Kemst ég örugglega út? Birgir Finnsson skrifar 19. febrúar 2026 12:32 Í kjölfar brunans mannskæða í Sviss á gamlárskvöld varð mikil umræða um brunavarnir og öryggi gesta á veitinga- og skemmtistöðum. Skv. grein 9.1.3 í byggingarreglugerð falla veitinga- og skemmtistaðir í notkunarflokk 2 sem skilgreindur er á eftirfarandi hátt: “Mannvirki eða rými þar sem gert er ráð fyrir að fólk geti safnast saman. Ekki er gert ráð fyrir að fólk gisti innan mannvirkisins. Fólk sem er í mannvirkinu er ekki allt nægjanlega kunnugt umhverfinu til að þekkja flóttaleiðir en er almennt fært um að bjarga sér sjálft út úr mannvirkinu eða á öruggt svæði við eldsvoða.” Hér er því sérstaklega mikilvægt að hafa í huga að flóttaleiðir verða að vera sýnilegar og vel merktar fyrir gesti sem þekkja ekki til þeirra. Þegar veitinga- og skemmtistaðir sækja um rekstrarleyfi þarf eigandi/rekstraraðili að uppfylla ýmis skilyrði áður en hægt er að opna staðinn. Meðal annars þarf umsögn frá slökkviliði, sem fer yfir samþykkta aðaluppdrætti/hönnunargögn og hvort þau samræmist fyrirhugaðri notkun. Í yfirferð sinni metur slökkviliðið ýmis atriði eins og: Brunaviðvörun Flóttaleiðir og möguleika til öruggrar rýmingar Leiðar- og neyðarlýsingu ásamt flóttaleiðamerkingum Hámarksfjölda gesta miðað við samþykkta hönnun flóttaleiða Klæðningar, lofta og veggja Brunahólfun Slökkvibúnað, slökkvitæki og sjálfvirk slökkvikerfi SHS hefur reglulegt eftirlit með veitinga- og skemmtistöðum til að fylgja því eftir að brunavarnir séu í lagi. Mikilvægt er að hafa í huga að í flestum tilfellum eru breytingar á húsnæði byggingaleyfisskyldar, enda geta breytingar haft áhrif á ýmsa þætti brunavarna t.d. flóttaleiðir og brunahólfun. Í tengslum við breytingar skapast oft tækifæri til þess að uppfæra og auka brunavarnir í takt við þróun og nútímakröfur í málaflokknum. Höfundur er settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Slysavarnir Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Slökkvilið Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Í kjölfar brunans mannskæða í Sviss á gamlárskvöld varð mikil umræða um brunavarnir og öryggi gesta á veitinga- og skemmtistöðum. Skv. grein 9.1.3 í byggingarreglugerð falla veitinga- og skemmtistaðir í notkunarflokk 2 sem skilgreindur er á eftirfarandi hátt: “Mannvirki eða rými þar sem gert er ráð fyrir að fólk geti safnast saman. Ekki er gert ráð fyrir að fólk gisti innan mannvirkisins. Fólk sem er í mannvirkinu er ekki allt nægjanlega kunnugt umhverfinu til að þekkja flóttaleiðir en er almennt fært um að bjarga sér sjálft út úr mannvirkinu eða á öruggt svæði við eldsvoða.” Hér er því sérstaklega mikilvægt að hafa í huga að flóttaleiðir verða að vera sýnilegar og vel merktar fyrir gesti sem þekkja ekki til þeirra. Þegar veitinga- og skemmtistaðir sækja um rekstrarleyfi þarf eigandi/rekstraraðili að uppfylla ýmis skilyrði áður en hægt er að opna staðinn. Meðal annars þarf umsögn frá slökkviliði, sem fer yfir samþykkta aðaluppdrætti/hönnunargögn og hvort þau samræmist fyrirhugaðri notkun. Í yfirferð sinni metur slökkviliðið ýmis atriði eins og: Brunaviðvörun Flóttaleiðir og möguleika til öruggrar rýmingar Leiðar- og neyðarlýsingu ásamt flóttaleiðamerkingum Hámarksfjölda gesta miðað við samþykkta hönnun flóttaleiða Klæðningar, lofta og veggja Brunahólfun Slökkvibúnað, slökkvitæki og sjálfvirk slökkvikerfi SHS hefur reglulegt eftirlit með veitinga- og skemmtistöðum til að fylgja því eftir að brunavarnir séu í lagi. Mikilvægt er að hafa í huga að í flestum tilfellum eru breytingar á húsnæði byggingaleyfisskyldar, enda geta breytingar haft áhrif á ýmsa þætti brunavarna t.d. flóttaleiðir og brunahólfun. Í tengslum við breytingar skapast oft tækifæri til þess að uppfæra og auka brunavarnir í takt við þróun og nútímakröfur í málaflokknum. Höfundur er settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar