Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 21:01 Starfsmaðurinn starfaði sem ökuleiðsögumaður þar til hann var sviptur ökuréttindunum. Vísir/Vilhelm Atvinnurekandi í ferðaþjónustu, sem sagði upp starfsmanni eftir að hann ók bíl fyrirtækisins sviptur ökuréttindum tvívegis, þarf ekki að greiða starfsmanninum skaðabætur vegna uppsagnarinnar. Ekki var fallist á að riftun á ráðningarsamningi án undangenginnar samningsbundinnar áminningar vegna brotanna hafi verið ólögmæt.
Þetta kemur fram í dómi Landsréttar sem kveðinn var upp í dag. Í dóminum er dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu frá 2024 staðfestur. Samkvæmt málsatvikum var starfsmaðurinn ráðinn til fyrirtækisins árið 2021 í starf ökuleiðsögumanns. Haustið 2022 hafi hann verið sviptur ökuréttindum fyrir að aka undir áhrifum áfengis utan vinnutíma. Hann hafi tjáð vinnuveitanda sínum að hann hefði verið sviptur réttindunum og samkomulag verið gert um að hann starfaði áfram sem leiðsögumaður án þess að aka bílum. Í lok febrúar 2023 var starfsmanninum sagt upp störfum á fundi vinnuveitanda síns. Þeim bar ekki saman um hvort skýringar hefðu verið gefnar fyrir uppsögninni en starfsmaðurinn sagðist ítrekað hafa gengið á eftir þeim án árangurs. Vinnuveitandinn sagðist aftur á móti hafa gefið þær skýringar að starfsmaðurinn hefði orðið uppvís að því að aka bílum fyrirtækisins án ökuréttinda innan athafnasvæðis þess. Gekkst við akstri sviptur réttindum Starfsmaðurinn rak mál á hendur vinnuveitandanum þar sem hann krafðist skaðabóta sem samsvöruðu launum út uppsagnarfrest auk orlofs og uppbóta. Krafan nam rúmum tveimur milljónum króna. Hann byggði kröfur sínar á ákvæði í ráðningarsamningi sem kvað á um að brot gegn reglum um notkun farartækja fyrirtækisins leiddi til „fyrirvaralausrar uppsagnar á ráðningarsamningi að undangenginni munnlegri og skriflegri áminningu“. Hann hafi enga áminningu fengið. Í dóminum er á því byggt að starfsmaðurinn hafi í tvígang ekið bifreið fyrirtækisins réttindalaus. Í fyrra skiptið hafi hann ekið samstarfsmanni sínum á bíl á vegum fyrirtækisins um þriggja kílómetra leið, frá starfsmannaaðstöðu að þjónustumiðstöð fyrirtækisins. Í seinna skiptið hafi hann ekið samstarfskonu sinni frá bústað starfsmanna fyrirtækisins að þjónustumiðstöðunni að hennar beiðni þar sem hún hefði ekki treyst sér til að aka bílnum sökum færðar. Starfsmaðurinn gekkst við báðum brotunum fyrir dómi en bar engu að síður fyrir sig áðurnefnt ákvæði í ráðningarsamningi og að hann hafi ekki fengið áminningu áður en samningnum var rift. Í málinu leit Landsréttur til þess að samkvæmt dómaframkvæmd beri vinnuveitanda að meta háttsemi starfsmanns heildstætt þegar tekin er ákvörðun um fyrirvaralausa riftun á ráðningarsamningi. Dómurinn taldi starfsmanninn hafa með háttsemi sinni brotið alvarlega gegn trúnaðarskyldu auk þess sem háttsemi hans hefði falið í sér lögbrot. Að því virtu var fyrirtækið sýknað af skaðabótakröfu starfsmannsins.
Dómsmál Ferðaþjónusta Vinnumarkaður Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira