Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Lovísa Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2026 09:52 Ingibjörg Isaksen spyr í Bítinu hvort að mögulegir árekstrar á milli eiginmanns heilbrigðisráðherra hafi orðið þess valdandi að skipunartími Hildigunnar Svavarsdóttur hafi ekki verið endurnýjaður á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Vísir/Vilhelm og aðsend Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir stöðuna grafalvarlega á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Forstjórinn hefur sagt upp störfum og læknar líka eftir að samningum var sagt upp. Ingibjörg spyr hvort skoða þurfi hvort einhverjir árekstrar hafi orðið á milli eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra. „
Staðan er auðvitað mjög krefjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hefur verið núna um nokkurra ára skeið. Við finnum það alveg að það þarf sérlausnir til þess að ná að manna heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni,“ segir Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, óskaði eftir því á dögunum að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili hennar. Hún sagði það vantraust í hennar garð. Rætt var við Ingibjörgu Isaksen í Bítinu um málið en í gær var einnig rætt við karlmann sem glímir við krabbamein og er búsettur á Akureyri. Hann þarf að sækja hluta sinnar meðferðar í Reykjavík og segir að búið sé að hola sjúkrahúsið að innan. Ingibjörg segir að fyrir einhverjum árum eða áratugum hafi starfsfólk, hjúkrunarfræðingar, læknar og aðrir, verið á hærri launum og það hafi átt að vera hvati til þess að koma til starfa á landsbyggðinni til að sinna þessari þjónustu. „Núna hins vegar hefur það gjörbreyst og við erum að kalla eftir því að það komi einhverjar sérlausnir fyrir sjúkrahúsið.“ Hún segir sérfræðilækna sem starfa í Reykjavík reka sínar stofur og þar sé launa- og rekstrarkostnaður og jafnvel biðlisti. En ætli þeir að koma norður til að sinna þjónustu í nokkra daga þurfa þeir sjálfir að greiða ferðakostnað og aðstöðugjald en rukka eftir gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, SÍ. „Þetta er auðvitað áskorun, því þeir sjá engan hag í þessu,“ segir Ingibjörg og að það þurfi að breyta þessu þannig að það séu einhverjir hvatar til að laða starfsfólk að á landsbyggðinni. Samningum sagt upp við sérfræðilækna Auk þess þurfi að skoða rekstrarkostnaðinn. Hún þekki ágætlega til á Akureyri og þar hafi þeim tekist vel til að fá lækna, til dæmis erlendis frá og lækna í afleysingu, en staðreyndin sé samt alltaf sú að afleysingalæknir kemur ekki í stað læknis sem er búsettur á staðnum og þekki sína sjúklinga. „Það keyrði nú botninn úr þegar heilbrigðisráðuneytið sendi póst á allar heilbrigðisstofnanir og meðal annars Sjúkrahúsið á Akureyri og fer fram á það að það verði sagt upp svokölluðum ferliverkasamningum,“ segir hún og að þessir samningar hafi verið við lýði í áratugi til að halda læknum á staðnum. Um er að ræða samninga við sérgreinalækna og taldi heilbrigðisráðuneytið að samningarnir auðvelduðu þeim að rukka fyrir gerviverktöku. Sjúkrahúsið á Akureyri hafi varað við þessu og að það myndi hafa afleiðingar, eins og uppsagnir lækna. Það hafi svo raungerst með uppsögnum þriggja þeirra. „Það var ekki hlustað á þetta og þeir voru að reyna að finna lausnir, veit ég, Sjúkrahúsið á Akureyri og voru að senda einhverjar tillögur á milli. Öllu var hafnað og þetta verður til þess að staðan á Akureyri verður mjög krefjandi.“ Hún segir þetta einnig hafa áhrif á aðra þjónustu, á legudeild til dæmis og á starf annarra stétta eins og hjúkrunarfræðinga sem eru sérhæfðir í speglun. Svipað og skómál menntamálaráðuneytis Ingibjörg telur heilbrigðisráðherra bera ábyrgð á því að bregðast við þessu máli. Alma Möller sé vissulega nýtekin við en málið eigi sér lengri sögu. Áskorunin sé að manna stöður í heilbrigðisþjónustu og stofnanir á landsbyggð hafi verið að gera það með þessum ferliverkssamningum. Ingibjörg segir að mál forstjórans og ákvörðun ráðuneytis að auglýsa stöðu hennar svipi til þeirrar ákvörðunar innan mennta- og barnamálaráðuneytisins að auglýsa stöður skólameistara í framhaldsskólum. „Ég veit að Hildigunnur hefur verið gagnrýnin á ráðuneytið þegar kemur að rekstrinum og þegar kemur að mæta þeim hvað varðar kjarasamninga lækna. Það er mygla þarna,“ segir Ingibjörg og að hún hafi fundið það í orðum Hildigunnar eftir að staðan var auglýst að hún upplifði ekki nægilegt traust. Ingibjörg segir skýrt í lögum hvaða hlutverki Sjúkrahúsið á Akureyri eigi að sinna og hvaða hlutverki það sé að sinna. Hún segist hafa sent inn fyrirspurn til ráðherra og að svörin hafi verið á þá leið að augljóst væri að ekki væri verið að sinna öllum lögbundnum hlutverkum. „Svörin voru alveg augljós að við værum ekki að ná að uppfylla þetta hlutverk… Þetta er grafalvarlegt vegna þess að við auðvitað þurfum að horfa á það og heilbrigðisráðherra þarf að horfa til þess að uppfylla þetta hlutverk og líka að sinna landsbyggðinni.“ Willum Þór Þórsson fyrrverandi þingmaður var heilbrigðisráðherra síðustu ríkisstjórnar. Spurð hvort hann hafi reynt að bregðast við þessu segir hún að það hafi á síðustu árum verið sett inn fjármagn í heilbrigðisstofnanir og heilsugæslur. Á sama tíma hafi rúmum fækkað á Landspítalanum og fólki fjölgað. Ingibjörg telur að hugsa þurfi um kerfið heildrænt og hvernig fjármunum sé varið. Ráðherra vanhæf og spurning um árekstra „Það hefur verið lítið um svör og hún hefur lýst sig vanhæfa í þessu máli vegna þess að eiginmaður hennar, Torfi Fjalar Jónsson, er einn af þeim læknum sem hafa verið með ferliverkasamninga hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri,“ segir Ingibjörg og veltir fyrir sér hvort það þurfi mögulega að skoða frekar hvort það hafi einhverjir árekstrar verið bak við tjöldin við þessa uppsögn samninganna. „Maður svona spyr sig þegar forstjóri fylgir eftir skipun heilbrigðisráðuneytisins og heilbrigðisráðherra að segja upp svona ferliverkasamningum og eiginmaður heilbrigðisráðherra er einn af þessum læknum og verður ósáttur við uppsögn á þessum ferliverkasamningum. Þá má alveg velta upp hver staðan er og af hverju Hildigunnur er hætt hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, en eins og ég segi, þetta er eitthvað sem bara þyrfti að kanna.“ „Er eitthvað valdatafl bak við tjöldin,“ spyr þá Lilja Katrín Gunnarsdóttir, þáttastjórnandi Bítisins. „Ég ætla ekki að dæma um það,“ segir Ingibjörg að lokum.
Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Heilbrigðismál Bítið Mál skólameistara Borgarholtsskóla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Tekur ekki undir fullyrðingar um að ástand sé í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðismálaráðherra fundaði með stjórnendum, læknahópum og fagráði á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag vegna alvarlegrar stöðu þar. Hún getur þó ekki tekið undir það að ástand sé í heilbrigðiskerfinu. 25. nóvember 2025 20:27 Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stöðuna á sjúkrahúsi Akureyrar grafalvarlega í kjölfar þess að stjórnendur hafi fengið fyrirmæli um að segja upp samningum við sérfræðilækna. Heilbrigðisráðherra segir ekki rétt að þau fyrirmæli hafi komið frá henni, tryggja þurfi þjónustuna með öllum ráðum, málið sé í farvegi hjá forstjóra sjúkrahússins. 7. október 2025 13:57 Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Flytja þarf hluta starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri vegna myglu sem kom upp á rannsóknarstofu sjúkrahússins í vetur. Forstjóri segir breytingarnar ekki hafa áhrif á starfsemi sjúkrahússins. 11. júlí 2025 10:54 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Tekur ekki undir fullyrðingar um að ástand sé í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðismálaráðherra fundaði með stjórnendum, læknahópum og fagráði á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag vegna alvarlegrar stöðu þar. Hún getur þó ekki tekið undir það að ástand sé í heilbrigðiskerfinu. 25. nóvember 2025 20:27
Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stöðuna á sjúkrahúsi Akureyrar grafalvarlega í kjölfar þess að stjórnendur hafi fengið fyrirmæli um að segja upp samningum við sérfræðilækna. Heilbrigðisráðherra segir ekki rétt að þau fyrirmæli hafi komið frá henni, tryggja þurfi þjónustuna með öllum ráðum, málið sé í farvegi hjá forstjóra sjúkrahússins. 7. október 2025 13:57
Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Flytja þarf hluta starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri vegna myglu sem kom upp á rannsóknarstofu sjúkrahússins í vetur. Forstjóri segir breytingarnar ekki hafa áhrif á starfsemi sjúkrahússins. 11. júlí 2025 10:54