Trump hækkar tolla á öll lönd Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 16:11 Donald Trump. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social. „
Eftir ítarlega, nákvæma og fullkomna yfirferð á hinni fáránlegu, illa skrifuðu og einstaklega and-amerísku ákvörðun um tolla sem Hæstiréttur Bandaríkjanna gaf út í gær, eftir MARGRA mánaða íhugun, þá skal þessi yfirlýsing vera til vitnis um að ég, sem forseti Bandaríkjanna, ætla tafarlaust að hækka tíu prósenta alþjóðlegan toll á lönd, sem mörg hver hafa verið að svindla á Bandaríkjunum í áratugi, án afleiðinga (þar til ég kom til sögunnar!), upp í hin fullkomlega leyfilegu og lagalega prófuðu, fimmtán prósent,“ skrifar forsetinn á samfélagsmiðilinn sinn Truth Social. Samkvæmt umfjöllun VG ætlar forsetinn að nota reglugerð frá árinu 1974 sem enginn annar bandarískur forseti hefur áður notað. Sú reglugerð gerir honum heimilt að setja á tolla í allt að 150 daga. Eftir dagana 150 þarf bandaríska þingið að samþykkja þá. „Á næstu mánuðum mun ríkisstjórnin ákvarða og gefa út nýja og löglega tolla, sem munu halda áfram okkar einstaklega farsæla ferli við að gera Ameríku stórkostlega á ný – STÓRKOSTLEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR!!!“ skrifar forsetinn. Sár eftir dóm hæstaréttar Í gær var greint frá því að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem hann hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Trump, sem notaði tollana ítrekað til að hóta öðrum ríkjum, byggði stóran hluta þeirra á neyðarlögum. Hæstirétturinn taldi það hins vegar ólöglegt þar sem það væri þingsins, ekki framkvæmdavaldsins, að leggja á tolla. Meðal tolla sem hæstiréttur telur ólöglega eru tollar Bandaríkjanna, svonefndir „gagnkvæmir“ tollar Bandaríkjastjórnar á önnur ríki, þar á meðal Ísland. Einnig eru tollar sem Trump lagði á Kanada, Kína og Mexíkó vegna meints aðgerðaleysis þeirra gegn innflutningi á fentanýli til Bandaríkjanna dæmdir ólöglegir. Þetta á hins vegar ekki við tolla Trumps á innflutt stál og ál. Trump var afar óánægður með ákvörðunina þar sem Repúblikanar eru í afgerandi meirihluta í réttinum. Þrír dómarar voru ósammála dómnum, Brett Kavanaugh, Samuel Alito og Clarence Thomas. „Nýja hetjan mín er hæstaréttardómarinn Brett Kavanaugh og, auðvitað, dómararnir Clarence Thoms og Samuel Alito. Það leikur enginn vafi á því að þeir vilja GERA BANDARÍKIN MÖGNUÐ AFTUR,“ skrifaði forsetinn á Truth Social. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira