Þriðja heimsstyrjöldin Arnór Sigurjónsson skrifar 23. febrúar 2026 10:30 Það er rétt að taka orð Zelensky, forseta Úkraínu alvarlega þegar hann segir innrás Rússa fyrir fjórum árum marka upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. Talið er að um tvær milljónir manna liggi í valnum, annaðhvort látnir eða særðir. Eyðilegging á innviðum er slík að það mun taka áratugi að bæta úr og kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljarða dollara. Og það er engin endir á þessum átökum sem ógnar framtíð Evrópu og alls heimsins. Bandaríkin undir stjórn Trumps forseta styðja áform Rússa um að leggja Úkraínu undir sig því ekki bara hefur hann hætt öllum vopna- og fjárhagsstuðningi við landið sem forveri hans studdi heldur gagnrýnir hann Zelensky fyrir að gefast ekki upp og semja við Rússa. Á sama tíma á Evrópa í vanda. Undanfarna áratugi hafa leiðtogar landanna látið öryggis- og varnarmál reka á reiðanum. Þeir hafa treyst á herstyrk Bandaríkjanna til eigin varna án þess að huga nægjanlega að eigin viðbúnaði. Freistingin til að nota það fé sem sparast við að draga úr eigin herstyrk til annarra hluta var of mikil. Afleiðingin er sú, að þegar Bandaríkin segja að Evrópa verði að standa á eigin fótum hvað hernaðargetu varðar þá geta þeir það ekki fyrr en eftir nokkur ár. Þessi nokkur ár uppbyggingar á eigin hernaðargetu geta skipt sköpum fyrir framtíð Evrópu andspænis stærstu og alvarlegustu hernaðarátökum frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Framtíð Úkraínu og Evrópu mun ráðast á þessum tíma. Fyrir Evrópu blasa tveir erfiðir valkostir við: Halda áfram að styðja varnarbaráttu Úkraínu á sama hátt og gert hefur verið fram að þessu. Með kaupum á vopnum frá Bandaríkjunum, lánum, viðskiptaþvingunum og pólitískum stuðningi. Orbanar og Figóar Evrópusambandsins (og reyndar NATO líka) gera það verkefni erfiðara, en miklu skiptir að hægt sé að einangra þessa aðila. Niðurstaðan tryggir ekki sigur Úkraínu, en gæti verið ávísun á uppgjöf. Eða að sjálfviljugar þjóðir í Evrópu gerast beinir þátttakendur í vörnum Úkraínu. Rökin fyrir því eru einföld. Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er fyrsta skrefið í að endurreisa fyrrum áhrifasvæði Sovétríkjanna. Falli Úkraína er Evrópa í hættu. Leyniþjónustur bandalagsríkjanna hafa sagt að fari svo megi gera ráð fyrir árás Rússa á einhver lönd Evrópu innan fimm ára. Spurningin er því sú hvort betra sé að stíga inn í þessi átök núna eða bíða þar til Rússar hafa náð vopnum sínum á ný. Verði slík ákvörðun tekin er ekki hægt að gera ráð fyrir stuðningi bandarískra stjórnvalda með núverandi forseta við völd. Ef að líkum lætur að þá munu leiðtogar Evrópu bíða og sjá hverju fram vindur. Á meðan berst Úkraína fyrir lífi sínu í sundurskotnu húsnæði án rafmagns, hita eða vatns á kaldasta tíma ársins. Stuðningur íslenskra stjórnvalda við varnarbaráttu Úkraínu er til fyrirmyndar og honum ber að halda áfram svo lengi sem þörf krefur. Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar