„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2026 21:17 Tolu Arokodare, sóknarmaður Wolves,misnotaði vítaspyrnu í 1-0 tapi á sunnudag gegn Crystal Palace og fékk í kjölfarið skilaboð með kynþáttaníði frá nokkrum aðilum. Getty/Paul Harding/ Breska lögreglan rannsakar kynþáttaníð í garð fjögurra leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar frá því um helgina.
Lögreglan rannsakar níð á netinu sem beindist að knattspyrnumönnum og varar gerendur við: „Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um.“ Knattspyrnudeild bresku lögreglunnar (UKFPU) sagðist hafa fengið fjórar aðskildar tilkynningar um níð í garð leikmanna í efstu deild síðustu þrjá daga. Ekkert pláss fyrir kynþáttaníð Tolu Arokodare, sóknarmaður Wolves, og Romaine Mundle, miðjumaður Sunderland, urðu nýjustu leikmennirnir sem urðu fyrir níði á netinu á sunnudag, en á laugardag hafði níði verið beint að Wesley Fofana hjá Chelsea og Hannibal Mejbri hjá Burnley. Mark Roberts lögreglustjóri, yfirmaður UKFPU, sagði á mánudag: „Það er algjörlega ekkert pláss fyrir kynþáttaníð, hvorki á netinu né í eigin persónu, og allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um.“ Fordæmir þessa viðbjóðslegu hegðun „UKFPU fordæmir þessa viðbjóðslegu hegðun og við munum tryggja að með sérhæfðu teymi lögreglumanna gerum við allt sem í okkar valdi stendur til að bera kennsl á þá sem bera ábyrgð og draga þá til ábyrgðar.“ We stand with Tolu Arokodare after our striker received disgusting racial abuse on social media.https://t.co/thrYmElLVu— Wolves (@Wolves) February 22, 2026 Arokodare misnotaði vítaspyrnu í 1-0 tapi á sunnudag gegn Crystal Palace og fékk í kjölfarið skilaboð með kynþáttaníði frá nokkrum aðilum. Sunderland greindu síðar frá því að Mundle hefði orðið fyrir svipuðum árásum eftir að hann kom inn á sem varamaður í 3-1 tapi gegn Fulham. Kalla eftir því að samfélagsmiðlar geri meira Samtökin Kick It Out, sem berjast gegn mismunun og hafa kallað eftir því að samfélagsmiðlar geri meira til að takast á við vandamálið, gáfu út yfirlýsingu á sunnudagskvöld sem hljóðaði svo: „Við stöndum með Tolu Arokodare hjá Wolves og Romaine Mundle hjá Sunderland.“ 🚨 After Wesley Fofana yesterday, Tolu Arokodare has been racially abused today as he states on his social media accounts.Wolves also release statement to support their player. We’re with you, Tolu 👊🏿 pic.twitter.com/mtnWJIpKNU— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 22, 2026 „Þetta hefur verið skelfileg helgi eftir að fjórir leikmenn vöktu athygli á kynþáttaníði sem þeir hafa orðið fyrir á samfélagsmiðlum en sú sorglega staðreynd er að við vitum að þetta gerist reglulega.“ „Skilaboðin frá þeim eru skýr: aðgerða er þörf. Það er ekki hægt að ætlast til þess að leikmenn umberi þessa hegðun, og það ætti enginn annar að gera heldur.“ „2026, það er enn það sama, ekkert breytist“ Enska úrvalsdeildin gaf út sínar eigin yfirlýsingar um nýjustu atvikin, hét því að aðstoða við rannsóknir Wolves og Sunderland, skuldbatt sig til „alvarlegra afleiðinga“ fyrir seka aðila og ítrekaði: „Fótbolti er fyrir alla – það er ekkert pláss fyrir kynþáttafordóma.“ Fofana, sem deildi myndum af skilaboðum sem beint var að Instagram-reikningi hans, hafði áður lýst svartsýni sinni á ferlið. „2026, það er enn það sama, ekkert breytist. Þessu fólki er aldrei refsað,“ skrifaði hann. „Þið búið til stórar herferðir gegn kynþáttafordómum en enginn gerir í raun neitt.“ Mejbri hafði áður einnig deilt níðskilaboðum sem hann hafði fengið og skrifaði á Instagram-story hjá sér: „Það er árið 2026 og það er enn til svona fólk. Vinsamlegast menntið ykkur og börnin ykkar.“
Enski boltinn Wolverhampton Wanderers Sunderland AFC Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Fótbolti Tekur á sig gagnrýni svo aðrir fái hana ekki Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira