Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Stefán Árni Pálsson skrifar 24. febrúar 2026 11:44 Snorri og Kolbrún hafa komið sér vel fyrir í Nígeríu. Snorri Sigurðsson og Kolbrún Anna Örlygsdóttir bjuggu ásamt börnum sínum á Hvanneyri þegar þau ákváðu að taka sér ársleyfi fyrir 15 árum af því að Snorra langaði til Danmerkur í endurmenntun. Þar leið fjölskyldunni vel, Snorri endurmenntaði sig við Háskólann í Árósum, Kolbrún fékk vinnu og krakkarnir undu sér vel. Þegar árið var á enda vildi Snorri heim, en ekki Kolla. Þau héldu atkvæðagreiðslu við eldhúsborðið heima - sem Snorri tapaði.
Sú örlagaríka atkvæðagreiðsla leiddi þau hjónin á braut ævintýra sem ekki sér fyrir endann á. Eitt leiddi af öðru, Snorri fór að vinna hjá dansk-sænska mjólkurfyrirtækinu Arla sem er með starfsemi víða um heim. Þegar honum bauðst starf hjá Arla í Kína var Kolla umsvifalaust til en Snorri var tvístígandi. „Maður þarf að stökkva á þetta - lífið getur verið búið á morgun,“ segir Kolbrún. En eftir heimsókn til danska tannlæknisins sem hélt einræðu yfir Snorra um sín töpuðu tækifæri í framandi löndum - ákvað hann að láta slag standa. Þau hjónin fluttu því til Kína í nokkur ár og eftir þá dvöl bauðst þeim að flytja til Nígeríu. Þar sem þau búa núna - og þangað heimsóttu Lóa Pind Aldísardóttir og Ívar Kristján Ívarsson tökumaður þau í haust fyrir lokaþáttinn af Hvar er best að búa? Þar starfar Snorri sem framkvæmdastjóri mjólkursviðs Arla í Nígeríu og er búinn að hanna og láta reisa fyrsta og eina stóra tæknivædda kúabú Vestur Afríku. Og líf þeirra í milljónaborginni Lagos er gjörólíkt lífi okkar sem búum á Íslandi - þau búa á manngerðri eyju í Lagos, þar sem eina leiðin inn og út er í gegnum vopnuð öryggishlið, og eru iðulega í lögreglufylgd þegar þau fara út fyrir eyjuna. Kúabúið sem Snorri hannaði er á óróasvæði í Norður-Nígeríu - og þar eru öryggisráðstafanir gríðarlegar. Hægt er að fá innsýn í ævintýralegt líf þessara kjörkuðu íslensku hjóna í lokaþætti af sjöundu þáttaröð Hvar er best að búa? sem er kominn inn á Sýn+ og fer seinna í línulega dagskrá. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá nokkur brot úr þættinum. Klippa: Búa umkringd öryggisvörðum Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit og ungri konu sem stofnaði kökufyrirtæki í Köben. Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, aðalmyndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson, klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Danmörk Kína Nígería Íslendingar erlendis Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira