Hvað gerist þegar samfélag verðlaunar eignarhald meira en nýsköpun? Davíð Aron Routley skrifar 25. febrúar 2026 08:30 Við höfum smám saman byggt upp eignarsamfélag þar sem tekjuöflun byggist fyrst og fremst á eignarhaldi. Eign verður tekjulind og afnot verða vara. Markmiðið verður ekki endilega að skapa ný verðmæti, heldur að eignast eitthvað sem hægt er að rukka fyrir. Samþjöppun eigna fylgir þá arðsemi frekar en samfélagslegri uppbyggingu. Þá er einnig markmið einstaklinga í samfélaginu að byggja sjálfsvirði sitt á eignum heldur en sköpun, sem hefur neikvæð áhrif á andlega heilsu, (Dittmar & Isham, 2022). Á sama tíma upplifir fólk víðtæka óánægju. Deilt er um borgarlínu, innflytjendur, húsnæðisverð, loftslagsbreytingar, nýtingu skatta, heilbrigðiskerfið, skólakerfið og velferðarkerfið. Í pólitískri umræðu er vandinn oft einfaldaður og ábyrgðin færð á andstæðinginn eða ákveðinn hóp. En orsakasamhengið er sjaldnast svo einfalt. Árið 2014 sýndu stjórnmálafræðingarnir Gilens og Page að þegar skoðanir almennings stangast á við vilja efnameiri hópa, eru stefnuákvarðanir líklegri til að fylgja þeim síðarnefndu (Gilens & Page, 2014). Það bendir til þess að áhrif í lýðræðislegu kerfi séu ekki jafndreifð og að efnahagslega valdamiklir hópar hafi umtalsverð áhrif á stefnumótun. Þessi þróun er oft tengd nýfrjálshyggju, hugmyndafræði sem leitast við að útvíkka markaðslausnir inn á sífellt fleiri svið samfélagsins. Einkavæðing, afnám opinberra reglugerða og lækkun skatta á fjármagn er réttlætt með vísan í hagvöxt. En verg landsframleiðsla mælir fyrst og fremst viðskipti og markaðsvirkni ekki andlega heilsu, félagslegt traust, heilbrigði náttúrunnar eða samfélagslega samheldni. Efnamestu hóparnir ráða því þá hvort peningurinn þeirra fer í samfélagsleg verkefni eða persónulegan hagvöxt. Í rauninni er þá nýfrjálshyggjan kapítalismi á örvandi efnum. En að spila Monopoly á kókaíni færi eflaust mjög fljótt úr böndunum.Hvað þýðir sterkt velferðarsamfélag? Þar sem lífið er ekki leikur eins og Monopoly þá eru raunverulegar afleiðingar af því að falla fyrir utan kerfisins. Rannsóknir sýna að það að leysa félagsleg vandamál með markaðsvæðingu sem byggir fyrst og fremst á arðsemi stendur frammi fyrir verulegum áskorunum og takmörkunum. Á sama hátt og þú ert ólíklegur sem foreldri að geta lagað sambandið þitt við barnið þitt með því að kaupa handa því meira dót. En markaðurinn getur spilað inn í, eins og félagsleg fyrirtæki sem samþætta félagslegan tilgang og efnahagsleg markmið geta skapandi vegið á móti hagnaði og félagslegum áhrifum, en það krefst meðvitaðrar hönnunar og reiðir sig oft á stuðning margra hagsmunaaðila umfram hrein markaðsöfl. Þegar grunnþarfir eins og matur, húsnæði, heilbrigðisþjónusta og menntun eru skilgreind sem grundvallarréttindi, geta markaðir starfað ofan á öryggi en ekki undir því, ef það er undir því þá starfa markaðir ofan á óöryggi sem getur t.d. útskýrt núverandi stöðu heilbrigðiskerfisins og menntakerfisins. Sterkt velferðarsamfélag er undirstaða samfélagslegra og einstaklingsbundna velgengni og vellíðan en sú hugmynd að árangur sé alfarið einstaklingsbundinn að sigur sé eingöngu afrakstur persónulegs dugnaðar og vanmáttur merki leti og aumingjaskap gerir lítið úr hlutverki umhverfisins. Félagsfræðingar og heimspekingar hafa lengi bent á að hegðun einstaklings verður ekki skýrð nema í samhengi við stofnanirnar, tengslanetin og aðstæðurnar sem móta líf hans.Nýfrjálshyggjan hefur tilhneigingu til að einfalda flókið samfélag í skýrar og seljanlegar frásagnir. Í því umhverfi þar sem skilaboð þurfa að vera hnitmiðuð verður freistandi að vísa í eina breytu eða einn hóp sem skýringu á víðtækum og fjölþættum vanda sem er þróun sem er ekki byggð á raunverulegu trausti og krefst ekki notkun á gagnrýnni hugsun. Skólakerfi byggt á trausti og gagnrýninni hugsun Við þurfum að endurhugsa skólakerfið frá grunni en ekki aðeins námskrá eða prófakerfi, heldur tilgang þess. Menntun ætti að byggjast á gagnrýninni hugsun og sögulegri meðvitund. Nemendur eiga ekki einungis að læra staðreyndir, heldur að skilja hvernig samfélög verða til, hvernig stofnanir mótast og hvernig vald dreifist. Opinbert skólakerfi ætti jafnframt að kenna þátttöku: hvernig fólk tekur virkan þátt í samfélaginu og byggir það upp. Mikilvæg þekking verður ekki til í tómarúmi heldur í samræðu, tilheyringu og uppbyggingu sameiginlegra rýma þar sem hugmyndir takast á, þróast og öðlast þá dýpt sem annars getur glatast í einföldun opinberrar umræðu. Ef menntun leggur áherslu á gagnrýna hugsun og félagslega þátttöku styrkist félagslegt net samfélagsins. Sterk tengsl, traust og virk þátttaka geta dregið úr kostnaði sem annars lendir á velferðar- og heilbrigðiskerfi. Fyrirbyggjandi samfélag er einfaldlega ódýrara og heilbrigðara en viðgerðarsamfélag. Nýsköpun ætti því ekki fyrst og fremst að beinast að hámarksgróða, heldur að uppbyggingu stoða sem styrkja samfélagið til lengri tíma. Hagnaður getur fylgt í kjölfarið en hann ætti að vera afleiðing, ekki markmið. Rannsóknir benda til þess að sterkt velferðarsamfélag hafi raunverulegt efnahagslegt gildi. Óörugg samfélög eyða meira í löggæslu, eftirlit og viðbrögð við heilbrigðis- og félagslegum krísum. Örugg samfélög geta hins vegar beint meiri orku og fjármagni í framleiðslu, sköpun og nýsköpun (Knack, S., & Keefer, P. 1997) Spurningin er því einföld: Viljum við verja sífellt meiri fjármunum í að bregðast við afleiðingum í eftirlit, löggæslu og krísuviðbrögð eða í aðferðir sem auka líkur á jákvæðri félagslegri hegðun, sterkari samfélagslegum tengslum og betri líkamlegri og andlegri heilsu? Heimildir Dittmar, H., & Isham, A. (2022). Materialistic value orientation and wellbeing. Current Opinion in Psychology, 46, 101337. https://doi.org/10.1016/j.copsyc.2022.101337 Gilens, M. (2012). Affluence and Influence: Economic Inequality and Political Power in America. . https://doi.org/10.5860/choice.50-4709. Knack, S., & Keefer, P. (1997). Does Social Capital Have an Economic Payoff? A Cross-Country Investigation. The Quarterly Journal of Economics, 112, 1251-1288. https://doi.org/10.1162/003355300555475 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Aron Routley Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun