Harmleikur á handboltaleik Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 08:30 Það var þétt setið í GP Joule Arena í gærkvöld eins og sjá má. Einn áhorfenda lést. Getty/Michael Hundt Áhorfandi lést á leik í Þýskalandi í gærkvöld, þar sem Flensburg og Montpellier mættust í Evrópudeild karla í handbolta.
Heimamenn í Flensburg unnu leikinn 40-35 en samkvæmt þýska miðlinum Bild var þó dauf stemning á leiknum mestallan tímann, þó að 5.000 áhorfendur væru í höllinni. Snemma leiks kom nefnilega í ljós að eitthvað alvarlegt hefði gerst á áhorfendapöllunum og eftir það var ekki spiluð nein tónlist í hátalarakerfinu, líkt og venja er á handboltaleikjum. „Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér þögninni í höllinni, það er engin tónlist núna og ekkert í gangi í hátalarakerfinu, þá var ég að fá að vita að það hefði orðið hér neyðartilvik. Þess vegna er allri tónlist sleppt núna. Ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist en við krossum fingur og vonum að það sé ekkert alvarlegt,“ sagði Markus Götz sem lýsti leiknum. Það sem eftir var af fyrri hálfleik heyrðist aðeins klapp í áhorfendum en leikurinn hélt áfram og leikmenn urðu að spila þrátt fyrir óvissuna sem ríkti. Þannig hélt leikurinn svo áfram í seinni hálfleik en að leik loknum var svo greint frá því að áhorfandi hefði látist. View this post on Instagram A post shared by SG Flensburg-Handewitt (@sgflensburghandewitt) „Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum að læknisfræðilegt neyðartilvik kom upp í EHF-heimaleik okkar gegn Montpellier. Því miður báru þær aðgerðir sem gripið var til ekki árangur,“ sagði í tilkynningu frá Flensburg. „Hugur okkar er hjá aðstandendum og vinum hins látna á þessum erfiðu tímum. Handboltinn og allt sem viðkemur íþróttum skiptir engu máli í dag,“ sagði framkvæmdastjórinn Holger Glandorf. Eins og fyrr segir vann Flensburg leikinn, rétt eins og þegar liðin mættust í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta ári. Flensburg er nú með sex stig eftir fjóra leiki, tveimur á eftir Kiel sem er efst í riðlinum. Montpellier er með tvö stig en Bidasoa neðst án stiga. Efsta liðið fer í 8-liða úrslit en liðin í 2.-3. sæti fara í umspil.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira