Þjálfari Mexíkó: „Það verða allir öruggir“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. febrúar 2026 13:00 Aguirre hefur þjálfað Mexíkó frá 2024 en hann var áður þjálfari liðsins frá 2001 til 2002 og milli 2009 og 2010. vísir/getty Javier Aguirre, landsliðsþjálfari Mexíkó, segir knattspyrnusamband landsins hafa lofað því að allir verði öruggir er liðið mætir Íslandi í nótt. Óeirðir brutust út í vikunni eftir að yfirmaður alræmdra glæpasamtaka var felldur á sunnudag.
Óvissa hefur ríkt um leik liðanna vegna ólgu í Mexíkó í kjölfar þess að mexíkóski herinn felldi glæpaforingjann Rúben Nemesio Oseguera, þekktur sem El Mencho, á sunnudaginn var. Oseguera fór fyrir einum stærstu glæpasamtökum heims og viðbrögðin urðu hörð víða um land þar sem bílar voru brenndir og vegum lokað. KSÍ hefur fengið reglulegar uppfærslur frá mexíkóska knattspyrnusambandinu sem hefur fundað með borgaryfirvöldum, lögreglu og hernum hvað öryggismálin varðar. Í gær var endanlega staðfest að leikurinn færi fram eftir nokkra óvissu. Töluverð öryggisgæsla verður í kringum leikinn. „Við fylgjumst vel með ástandinu. Fólkið hjá mexíkóska knattspyrnusambandinu hefur fullvissað mig um að allir verði öruggir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Aguirre á blaðamannafundi fyrir leikinn í gær. „Við erum mættir hingað. Við erum rólegir, afslappaðir, við sinnum æfingum og skulum tala um íþróttir. Það eru skilaboðin sem ég get sent stuðningsfólki liðsins,“ segir Aguirre jafnframt. Uppselt er á leik næturinnar þar sem má búast við rúmlega 30 þúsund mexíkóskum stuðningsmönnum í stúkunni. Mexíkó mætir íslensku liði sem samanstendur af leikmönnum úr Bestu deildinni. Leikurinn hefst klukkan 2:00 í nótt og er sýndur beint, og í opinni dagskrá, á Sýn Sport.
Mexíkó Landslið karla í fótbolta KSÍ Tengdar fréttir Pollrólegur yfir stöðunni í Mexíkó Þrátt fyrir óeirðirnar sem brutust út í Mexíkó í byrjun vikunnar, sem meðal annars valda því að gríðarleg öryggisgæsla verður á landsleik Íslands og Mexíkó í kvöld, hefur forseti FIFA fulla trú á að Mexíkóum takist vel til með að halda HM í fótbolta í sumar. 25. febrúar 2026 09:00 Staðan í Mexíkó og Bandaríkjunum valdi áhyggjum Andreas Rettig, framkvæmdastjóri þýska knattspyrnusambandsins, DFB, segir ofbeldisöldu í Guadalajara í Mexíkó ýta undir kvíða fremur en spennu fyrir komandi heimsmeistaramóti í sumar. 24. febrúar 2026 14:31 Ætla að sýna hve ráin hefur hækkað í Bestu deildinni Segja má að landsleikur Mexíkó og Íslands aðra nótt verði um leið uppgjör efstu deilda Mexíkó og Íslands, því þaðan koma nánast allir leikmenn landsliðanna að þessu sinni. 24. febrúar 2026 14:02 Misvísandi fréttir frá Mexíkó Enn er óvíst hvort landsleikur karlalandsliðs Íslands við Mexíkó þar ytra fari fram á aðfaranótt fimmtudags líkt og til stendur. Einhverjir miðlar segja líklegra en ekki að leiknum verði frestað af öryggisástæðum en aðrir segja leikinn fara fram. 24. febrúar 2026 09:15 Öryggisgæsla landsliðsins aukin og engir sénsar teknir Mikil öryggisgæsla er í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem statt er í Queretaro í Mexíkó og mætir heimamönnum í æfingaleik á miðvikudag. Fulltrúar KSÍ taka enga sénsa varðandi öryggi leikmanna og starfsfólks eftir ófremdarástand sem skapaðist í landinu í gær í kjölfar þess að mexíkóski herinn skaut einn helsta glæpaforingja landsins til bana. 23. febrúar 2026 12:18 Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sjá meira
Pollrólegur yfir stöðunni í Mexíkó Þrátt fyrir óeirðirnar sem brutust út í Mexíkó í byrjun vikunnar, sem meðal annars valda því að gríðarleg öryggisgæsla verður á landsleik Íslands og Mexíkó í kvöld, hefur forseti FIFA fulla trú á að Mexíkóum takist vel til með að halda HM í fótbolta í sumar. 25. febrúar 2026 09:00
Staðan í Mexíkó og Bandaríkjunum valdi áhyggjum Andreas Rettig, framkvæmdastjóri þýska knattspyrnusambandsins, DFB, segir ofbeldisöldu í Guadalajara í Mexíkó ýta undir kvíða fremur en spennu fyrir komandi heimsmeistaramóti í sumar. 24. febrúar 2026 14:31
Ætla að sýna hve ráin hefur hækkað í Bestu deildinni Segja má að landsleikur Mexíkó og Íslands aðra nótt verði um leið uppgjör efstu deilda Mexíkó og Íslands, því þaðan koma nánast allir leikmenn landsliðanna að þessu sinni. 24. febrúar 2026 14:02
Misvísandi fréttir frá Mexíkó Enn er óvíst hvort landsleikur karlalandsliðs Íslands við Mexíkó þar ytra fari fram á aðfaranótt fimmtudags líkt og til stendur. Einhverjir miðlar segja líklegra en ekki að leiknum verði frestað af öryggisástæðum en aðrir segja leikinn fara fram. 24. febrúar 2026 09:15
Öryggisgæsla landsliðsins aukin og engir sénsar teknir Mikil öryggisgæsla er í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem statt er í Queretaro í Mexíkó og mætir heimamönnum í æfingaleik á miðvikudag. Fulltrúar KSÍ taka enga sénsa varðandi öryggi leikmanna og starfsfólks eftir ófremdarástand sem skapaðist í landinu í gær í kjölfar þess að mexíkóski herinn skaut einn helsta glæpaforingja landsins til bana. 23. febrúar 2026 12:18