Vilja borgarlest í stað borgarlínu Kjartan Kjartansson skrifar 26. febrúar 2026 09:32 Frumdrög að legu borgarlínu í gegnum Hafnarfjörð sem kynnt var í fyrra. Verkefnastofa Borgarlínu Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.
Þeir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, viðra þessa hugmynd í aðsendri grein sem þeir skrifuðu á Vísi í morgun ásamt Runólfi Ágústssyni, stjórnarmanni í Fluglestinni þróunarfélagi ehf. Þeir segja mikilvægt að skoða fleiri leiðir en borgarlínu til að mæta þörf fyrir betri samgöngur, styttri ferðatíma og aukna burðargetu í samgöngukerfinu, sérstaklega á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. „Stórar framkvæmdir þurfa að skila raunverulegum ávinningi. Markmiðið hlýtur að vera að bæta flæði og gera ferðatíma styttri og fyrirsjáanlegri — bæði fyrir þá sem nýta almenningssamgöngur og þá sem vilja eða þurfa að vera á bíl,“ skrifa þremenningarnir. Hneppi Hafnfirðinga í stofufangelsi Vara þeir við því að framkvæmdir við borgarlínu ofanjarðar á annarri stofnbrautinni á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar loki eða takmarki umferð þar árum saman á meðan á framkvæmdum standi „og hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan“. Runólfur Ágústsson, Orri Björnsson og Kjartan Már Kjartansson vilja skoða betur lest í stað borgarlínu, nú þegar framkvæmdir við borgarlínu eru að hefjast.Aðsend Í staðinn vilja þeir taka aftur upp gamlar hugmyndir um fluglest milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar og sameina hana borgarlínulegg til Hafnarfjarðar. „Lestarlína undir borginni er lausn sem getur boðið upp á meiri burðargetu, meiri hraða, meiri fyrirsjáanleika og stöðugri ferðatíma, óháð umferð og veðri. Slík getur tengt saman kjarna svæðisins með skýrum hætti og skapað innviði sem standa í áratugi.“ Varðandi kostnaðinn benda þeir á að Fjarðaheiðagöng, sem innviðaráðherra tók nýlega út af borðinu í bili, hefðu átt að kosta fimmtíu milljarða króna og þjóna tiltölulega fáum. „Hér er um að ræða framkvæmd sem þjónar hundruðum þúsunda og yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar,“ skrifa þeir.
Borgarlína Samgöngur Reykjavík Reykjanesbær Hafnarfjörður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira