Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Atli Ísleifsson skrifar 26. febrúar 2026 08:54 Bjarni Guðjónsson hefur verið orðaður við framboð, en sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi. VÍS Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið.
Bjarni hefur starfað hjá VÍS frá árinu 2024 en hann hafði þar áður starfað sem framkvæmdastjóri KR um þriggja ára skeið. Bjarni staðfestir í samtali við fréttastofu að hann hafi sagt upp störfum í gærmorgun og að hann muni vinna uppsagnarfrest. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Í samtali við fréttastofu á þriðjudag vildi Bjarni ekki tjá sig um þann orðróm að hann yrði á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann sagðist þó vera ánægður með að fólk hefði trú á sér og að hann hafi skoðanir. Mikil leynd ríkir um störf kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í borginni en það eina sem fyrir liggur er að Hildur Björnsdóttir verður oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Bjarni hafði áður starfað sem viðskipta- og sölustjóri í sjávarútvegi hjá VÍS, auk þess að hafa verið sölustjóri í sjávarútvegi hjá Odda og rekstrarstjóri hjá Ellingsen. Bjarni var atvinnumaður í fótbolta á sínum yngri árum og spilaði meðal annars með ÍA, Newcastle United, Stoke City og KR. Þá hefur hann sömuleiðis þjálfað, meðal annars meistaraflokk karla hjá Fram og KR. Hann sé með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og ECA-gráðu í stjórnun íþróttafélaga (e. Club Management Program) ásamt þjálfaraleyfi. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að náðist í Bjarna.
Skagi Vistaskipti Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Sveitarstjórnarkosningar árið 2026 fara fram þann 16. maí þar sem kosið verður um stjórnir allra 62 sveitarfélaga landsins. Þangað til verður valið á lista hinna ýmsu stjórnmálaflokka, hvort sem það verður með prófkjörum eða öðrum hætti. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. 5. janúar 2026 11:00 Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira
Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Sveitarstjórnarkosningar árið 2026 fara fram þann 16. maí þar sem kosið verður um stjórnir allra 62 sveitarfélaga landsins. Þangað til verður valið á lista hinna ýmsu stjórnmálaflokka, hvort sem það verður með prófkjörum eða öðrum hætti. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. 5. janúar 2026 11:00