Skorti orku og ástríðu Valur Páll Eiríksson skrifar 26. febrúar 2026 14:33 Craig Pedersen segir menn ákveðna í að gera betur en gegn Bretum. Vísir/Lýður Valberg Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, segir áskorun að mæta sterku liði Litáen í Laugardalshöll í undankeppni HM á föstudag. Nauðsynlegt sé að leikmenn finni ástríðu og orkustig sem var ekki til staðar gegn Bretum í síðasta heimaleik.
Landsliðsmenn fengu tveggja daga frí í síðustu viku hér á fróni áður en þeir komu saman til æfinga um helgina. Pedersen segir magnað hversu fljótir menn í íslenska hópnum séu að stilla saman strengi og æfingar hafi eftir því gengið vel. „Þessi vika hefur gengið vel. Þessi hópur leikmanna komast sérstaklega hratt saman í rytma og komast á sömu blaðsíðuna. Þeir þekkja hvorn annan vel, hverjar tilhneigingar hvors annars eru. Þetta hefur smollið vel saman þessa fjóra daga af æfingum hingað til,“ segir Craig í samtali við Sýn. Klippa: Craig rennir blint í sjóinn og kallar eftir ástríðu Allir séu því í toppstandi. „Einn kosturinn við landsliðsglugga um miðjan vetur er hversu góðu formi menn eru í. Við getum farið beint í hlutina sem við viljum gera. Við höfum æfingarnar stuttar og hnitmiðaðar.“ Sérstök staða í riðlinum Í flestum riðlum undankeppninnar fyrir komandi heimsmeistaramót hafa línur tekið að skýrast eftir fyrstu tvo leikina sem fram fóru í lok nóvember. Sterkari lið vinna nokkuð örugga sigra á meðan önnur sitja eftir. Einstök staða er í riðli Íslands, þar sem öll fjögur liðin eru jöfn að stigum, með þrjú talsins. Ísland fékk tvö stig fyrir frábæran útisigur á Ítalíu í fyrsta leik en fylgdi því eftir með slæmu tapi fyrir Bretum hér heima. Staðan í riðli Íslands gæti vart verið jafnari.Skjáskot/Wikipedia Litáen marði Breta með eins stigs mun í fyrsta leik en tapaði svo með eins stigs mun fyrir Ítölum. Ísland mætir nú Litáen heima og heiman í komandi leikjum. Í Laugardalshöll á föstudag og ytra á mánudag. Hvernig blasir staðan í riðlinum við Craig? „Við þurfum að einblína á einn leik í einu. Ef við vinnum báða leiki núna erum við ekki öruggir áfram en ef við töpum báðum erum við ekki úr leik heldur. Við tökum því bara einn leik í einu. Vonandi verður frammistaðan góð og orkumikil á föstudaginn áður en við horfum til næsta leiks eftir það.“ Renna blint í sjóinn Ísland tapaði fyrir Litáen í æfingaleik fyrir EuroBasket í sumar en þá voru NBA-stjörnur Litáa með í för. Þeir leikmenn verða fjarverandi á föstudaginn og óvíst hversu margar stjörnur liðsins í Evrópu koma með til Íslands. Vera má að einhverjar þeirra spili aðeins síðari leikinn ytra. Sama hvað, þá mætir sterkt litáískt lið hingað til lands. „Litáen er körfuboltaþjóð með stóra púllíu leikmanna. Ef einhver dettur út þá kemur leikmaður inn úr úrvalsdeildinni á Spáni eða í Litáen. Þá vantar NBA-leikmenn sem mættu okkur í sumar, það munar um það. En þá koma gæðaleikmenn inn í staðinn. Við vitum ekki fullkomnlega hvernig hópurinn þeirra verður mannaður – en hann verður sterkur sama hvað,“ segir Craig. Ástríða og orkustig Eftir tapið svekkjandi fyrir Bretum hér heima eru menn ákveðnir í því að vinna sigur á heimavelli í þetta sinn. Craig segir orkustig og ástríðu, sem jafnan einkennir íslenska liðið, hafa skort gegn þeim bresku. „Orkustigið var ekki á þeim stað sem það þurfti að vera á. Það þarf að bæta úr því á föstudaginn. Orkan og ástríðan er það sem þarf að vera til staðar frá byrjun, í allar 40 mínúturnar,“ segir Craig. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Sjá meira