Innherji

Partners Group stað­festir sölu á atNorth fyrir nærri fimm hundruð milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Eyjólfur Magnús Kristinsson er forstjóri atNorth en frá því að Partners Group eignaðist félagið fyrir liðlega fjórum árum hefur EBITDA-hagnaðurinn fjórtánfaldast. 
Eyjólfur Magnús Kristinsson er forstjóri atNorth en frá því að Partners Group eignaðist félagið fyrir liðlega fjórum árum hefur EBITDA-hagnaðurinn fjórtánfaldast.  atNorth

Bandaríska félagið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn CPP hafa í sameiningu gengið frá samkomulagi um að kaupa atNorth, sem á rætur sínar að rekja til Íslands, af Partners Group og er gagnaversfyrirtækið verðmetið á tæplega fimm hundruð milljarða íslenskra króna í viðskiptunum. Samhliða sölunni hefur Partners Group skuldbundið til að endurfjárfesta í atNorth og eignast allt að tíu prósenta hlut.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×