Sparkað frá Chelsea en trónir nú á toppi tilverunnar Sindri Sverrisson skrifar 27. febrúar 2026 16:16 Lífið hefur leikið við Declan Rice í vetur. Getty/David Price Declan Rice fékk ekki samning hjá Chelsea þegar hann var táningur og varð að yfirgefa félagið. Hann sló hins vegar í gegn hjá West Ham, var seldur fyrir metfé til Arsenal og er nú í lykilhlutverki liðs sem gæti unnið fjóra titla á þessari leiktíð.
Í myndbandinu hér að neðan er fjallað um ferðalag Rice á toppinn en færa má fyrir því góð rök að hann sé heilsteyptasti og mögulega besti miðjumaður fótboltans í dag. Klippa: Ferðalag Declan Rice á toppinn Rice og félagar drógu aðeins úr efasemdaröddum um síðustu helgi með frábærum 4-1 sigri í grannaslagnum við Tottenham, eftir tvö jafntefli í röð í ensku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir velgengnina í vetur er liðið þó aðeins fimm stigum á undan Manchester City í titilbaráttunni og City á leik til góða. Þess vegna má ekkert út af bregða ætli Arsenal að verða Englandsmeistari í vor í fyrsta sinn frá árinu 2004. Ljóst er að Rice verður áfram í lykilhlutverki en hans bíður stórleikur á sunnudaginn við Chelsea. Arsenal á svo leik við Brighton í næstu viku, bikarleik við Mansfield og svo meistaradeildareinvígi við Leverkusen en úrslitaleikurinn við City í deildabikarnum er ekki fyrr en 22. mars. Eftir tímabilið bíður svo sjálft heimsmeistaramótið þar sem Rice verður í aðalhlutverki með enska landsliðinu sem byrjar á leik við Króatíu 17. júní.
Enski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira