Innlent

Vegum lokað í kjöl­far snjóflóðs í Rakna­dals­hlíð

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Egill

Snjóflóð féll á veginn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum síðdegis í dag. Í kjölfarið var ákveðið að loka veginum, sem og Dynjandisheiði og Kleifaheiði til morguns

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

„Í ljósi veðurs og veðurspár hefur sú ákvörun verið tekin, í samráði við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands að opna ekki veginn um Raknadalshlíð fyrr en í fyrramálið, miðvikudaginn 4. mars. Snjóflóð féll á veginn nú síðdegis. Dynjandisheiði er einnig lokuð vegna veðurs sem og Kleifaheiði.“

Lögreglan ráðleggur þeim vegfarendum sem eru á ferðinni vestur og án húsaskjóls á svæðinu austan við Kleifaheiði að hafa samband við 112 og óska eftir samtali við lögregluna á Ísafirði sem vinnur þá að því að koma þeim í skjól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×