Sport

Bjarni er efstur í öllum heiminum og Ís­land er með þrjú inn á topp fimm

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rökkvi Hrafn Guðnason, Bjarni Leifs og Bergrós Björnsdóttir voru í miklum ham í 26.1 og voru öll inn á topp fimm í heiminum.
Rökkvi Hrafn Guðnason, Bjarni Leifs og Bergrós Björnsdóttir voru í miklum ham í 26.1 og voru öll inn á topp fimm í heiminum. @bergrosbjornsdottir

Undankeppni heimsleikanna í CrossFit 2026 hófst með fyrsta hluta opna hluta heimsleikanna og við Íslendingar getum svo sannarlega verið stolt af okkar fólki.

Ísland átti tvo bestu karlana í heiminum í 26,1 og þá er besta konan okkar í fimmta sæti á heimsvísu.

Bjarni Leifs hefur verið staðfestur sem sigurvegari 26.1.@crossfitgames

Æfingin snerist um margar endurtekningar á því að kasta þungum bolta í vegg, hoppa yfir kassa og svo að stíga upp á og yfir kassa með þungan bolta. Boltinn var sex kíló hjá konunum en níu kíló hjá körlunum. Þessi æfing reyndi því vel á fæturna hjá íþróttafólkinu.

Bjarni Leifs var eini karlinn í heiminum sem kláraði 26,1 á undir ellefu mínútum en hann fór í gegnum alla æfinguna á 10 mínútum og 59 sekúndum. Bjarni var því efstur í öllum CrossFit-heiminum í þessari æfingu.

Það voru síðan aðeins sex sekúndur í næsta mann sem var landi hans Rökkvi Hrafn Guðnason á 11 mínútum og fimm sekúndum. Þriðji var síðan Bandaríkjamaðurinn Colten Mertens á 11 mínútum og 16 sekúndum.

Þetta eru sannarlega framtíðarmenn því Bjarni er 22 ára gamall og Rökkvi Hrafn einu ári yngri.

Hin nítján ára gamla Bergrós Björnsdóttir varð í fimmta sæti hjá konunum en hún kláraði á 10 mínútum og 55 sekúndum.

Eins og sjá má hér fyrir ofan þá gerðu þessi þrjú æfinguna á sama tíma.

Á undan Bergrós voru Mirjam von Rohr frá Sviss, Lucy Campbell og Keira McManus frá Beretlandi og Andra Moistus frá Eistlandi. Von Rohr var langfyrst en hún kláraði á 9 mínútum og 50 sekúndum.

Næstu íslensku stelpur voru Elín Birna Hallgrímsdóttir (200. sæti) og Steinunn Anna Svansdóttir (285. sæti).

Bjarni, Rökkvi og Bergrós voru ánægð með uppskeruna og birtu mynd af sér saman eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×