Handbolti

Norð­menn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jonas Wille mun ekki stýra norska landsliðinu á HM í Þýskalandi á næsta ári.
Jonas Wille mun ekki stýra norska landsliðinu á HM í Þýskalandi á næsta ári. EPA/Bo Amstrup

Jonas Wille hefur stýrt norska karlalandsliðinu í handbolta á stórmóti í síðasta sinn því samningur hans sem landsliðsþjálfari verður ekki framlengdur.

Þetta staðfestir norska handknattleikssambandið í dag. Ákvörðunin var tekin þegar stjórn sambandsins fjallaði um málið á þriðjudagskvöld.

„Handboltakarlarnir hafa undir stjórn Jonas tekið mikilvæg skref, þótt það endurspeglist ekki í úrslitum á síðustu stórmótum,“ sagði Randi Gustad, forseti norska sambandsins, og bætti við:

„Þegar stjórnin hefur nú engu að síður ákveðið að framlengja ekki samninginn snýst það á endanum um að við höfum trú á því að aðrir kandídatar séu til sem munu auka líkurnar á því að liðinu takist að ná því síðasta sem upp á vantar á komandi árum,“ sagði Gustad.





Wille hefur gegnt starfinu síðan hann tók við af Christian Berge árið 2022. Hann segir að hann og forsetinn skilji sem vinir en er um leið hissa á því að fá ekki að halda áfram.

„Þetta hefur verið mjög skipulagt matsferli. Sjálf matsskýrslan hefur verið mjög jákvæð fyrir mig. Það tek ég með mér áfram, að þar hef ég fengið staðfestingu á því að mörgum finnst ég hafa unnið gott starf,“ sagði Wille við norska ríkisútvarpið en þetta kom honum á óvart.

„Já, það verð ég að segja. Um leið er erfitt fyrir mig að vita nákvæmlega hvaða viðmið þau hafa lagt mat á. Það sem ég hef fengið að heyra er að þeim finnist aðrir vera enn betri. Það verð ég bara að virða, það er ekki mikið sem ég get gert í því,“ sagði Wille.

Hann stýrði liðinu á fimm stórmótum á fjögurra ára samningstíma sínum. Noregur var ekki nálægt verðlaunum á þessu tímabili en náði bestum árangri á því fyrsta þegar liðið endaði í sjötta sæti á HM 2023. Liðið endaði í níunda sæti á Evrópumótinu í janúar. Síðasti úrslitakeppnisleikur Wille var afgerandi tap fyrir Danmörku á EM. Síðustu verðlaun Noregs voru bronsverðlaunin sem liðið vann á Evrópumótinu 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×