Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Freyja Þórisdóttir skrifar 7. mars 2026 19:22 Nokkrar litlar stjörnur fengu tækifæri til að stíga framar á sviðið og taka einsöng. Aðsend/Valgarður Gíslason Skólakór Kársnesskóla fagnar fimmtíu ára starfsafmæli á því skólaári sem nú er að líða. Þess til heiðurs voru haldnir þrennir tónleikar í dag en alls sungu um þrjú hundruð börn á tónleikunum en einnig mátti sjá gömlum kórbörnum bregða við.
Salurinn í Kópavogi hýsti þrjá kórtónleika í dag, laugardaginn 7. mars, en Skólakór Kársness hefur lengi þótt vera einn farsælasti barnakór landsins. Öll kórbörn skólans komu fram á tónleikunum en salurinn þrífylltist í dag af aðdáendum kórsins. Fyrrverandi kórbörn voru boðuð með í gleðina en í þeim mátti heyra meðal annars í bakröddum þegar Emilíana Torrini steig á stokk. Hún er ein þeirra sem sungu með kórnum alla sína grunnskólagöngu en það sama má segja um Höllu Tómasdóttur, Erp og Gissur Pál Gissurarson. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávarpaði samkomuna og þakkaði stofnanda kórsins, Þórunni Björnsdóttir, fyrir ómetanlegt starf og framlag sitt til menningar. Þær Álfheiður Björgvinsdóttir og Þóra Marteinsdóttir tóku við stjórn kórsins. Gleðin var svo sannarlega við völd á öllum þremur tónleikum dagsins eins og sjá má á myndum. Það var svo sannarlega margt um manninn í Hamraborginni í dag. Aðsend/Valgarður Gíslason Mikið líf og fjör var baksviðs en skólakórinn hefur í mörg ár klæðst bláum og hvítum kórbúningum.Aðsend/Valgarður Gíslason Salurinn fylltist í þrígang en foreldrar, aðstandendur og aðrir aðdáendur flykktust inn í salinn.Aðsend/Valgarður Gíslason Þau allra yngstu opnuðu hátíðina með glæsibrag.Aðsend/Valgarður Gíslason Tóta tók á móti blómum frá Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs.Aðsend/Valgarður Gíslason Yngstu deildirnar sungu fyrst en hinn svokallaði „Minnsti kór“ söng á tónleikum klukkan eitt.Aðsend/Valgarður Gíslason
Kórar Kópavogur Tónleikar á Íslandi Tímamót Menning Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira