Getur tölva dæmt betur en maður? Sævar Þór Jónsson skrifar 8. mars 2026 15:00 Gervigreind er ekki lengur fjarlæg framtíðarsýn í íslensku réttarfari heldur verkfæri sem þegar er farið að nota. Á meðan tæknin hraðar greiningu álitamála og einfaldar skjalagerð stendur stóra spurningin eftir. Munum við treysta tölvu til að kveða upp dóm yfir okkur? Í dag leysir gervigreindin verkefni sem lögfræðingar töldu óhugsandi fyrir örfáum árum. Hér á landi er undirbúningur þegar hafinn hjá hinu opinbera við að kanna samræmd innkaup á tæknilausnum fyrir lögfræðinga innan stjórnarráðsins. Þetta snýst ekki lengur bara um þægindi heldur grundvallarbreytingu á því hvernig lögum er framfylgt. Rannsóknir sýna að á ákveðnum sviðum skilar gervigreindin meiri nákvæmni en lögmenn, sérstaklega þegar spá þarf fyrir um niðurstöður dómsmála eða leita í viðamiklum gagnasöfnum. Í sumum tilfellum fer tæknin fram úr því sem fólki tekst að jafnaði. En þýðir það að gervigreindin geti tekið við dómarahamrinum? Þar vandast málið. Þrátt fyrir hraðann glímir tæknin við ákveðinn túlkunarvanda. Sé gervigreind til að mynda þjálfuð með gömlum dómafordæmum sem endurspegla úrelt viðhorf er hætta á að hún endurtaki vitleysuna með vélrænum hætti. Réttlæti snýst nefnilega ekki bara um rökfræði heldur líka um mannlegt mat, siðferði og samhengi sem gervigreindin á enn erfitt með að fanga. Innan Evrópu, sem og hér á Íslandi, er nú þegar verið að rýna í lagaumhverfið um notkun gervigreindar í dómskerfinu. Flestir sérfræðingar telja að hún muni ekki koma í stað dómara í bráð, heldur verður öflugur aðstoðarmaður. Kostirnir liggja í hraðanum þar sem hægt er að fara yfir þúsundir blaðsíðna af málsgögnum á augabragði og bent á misræmi í fordæmum sem auðveldlega gæti farið framhjá miseinbeittri manneskju. Mannlegi þátturinn hlýtur þó áfram að vera lykilatriði. Lokaniðurstaðan, sem varðar frelsi og réttindi fólks, verður áfram á ábyrgð dómara sem getur sýnt samkennd og skilið blæbrigði lífsins. Við stöndum á krossgötum hvað varðar gervigreindina því hún mun ekki bara auka nákvæmni við úrslausn mála heldur mun hún spara fjármuni og mannafla og því er ljóst að til framtíðar lítið muni fækka í stétt lögmann og lögfræðinga. Þá er þetta ekki spurningin er hvort gervigreind hafi áhrif á dóma, heldur hversu mikið við ætlum að leyfa henni að ráða för. Erum við tilbúin í heim þar sem niðurstaðan er reiknuð út af gervigreind eða viljum við halda í mannlegt réttlæti – með öllum þeim göllum og mistökum sem því geta fylgt? Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Sævar Þór Jónsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar