ESB-umræðan leysir ekki efnahagsvandann Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar 10. mars 2026 11:30 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sett aðildarviðræður við Evrópusambandið á dagskrá, þvert á það sem hún lofaði fyrir síðustu kosningar. Nú hertekur sú umræða allt, en mjög heppilega fyrir ríkisstjórnina á sama tíma og staða efnahagsmála hér á landi er erfið. Ríkisstjórninni gengur ekkert í baráttunni við vexti og verðbólgu út af eigin ákvörðunum og atvinnuleysi þýtur upp. Í slíku ástandi er eðlilegt að spurt sé hvort ríkisstjórnin sé að beina athyglinni frá þeim verkefnum sem hún þarf sjálf að takast á við. Rétt fyrir síðustu Alþingiskosningar lét núverandi forsætisráðherra þau orð falla að það gerðist oft, að þegar illa gengi í efnahagsmálum og verðbólga og vextir væru til vandræða, þá færi fólk að tala meira um inngöngu í Evrópusambandið. Þau orð eru athyglisverð í ljósi stöðunnar í dag. Nú þegar ríkisstjórnin stendur frammi fyrir erfiðum efnahagsáskorunum virðist Evrópuumræðan aftur hafa fengið aukið vægi. Það vekur spurningar um hvort ríkisstjórnin treysti sér til að takast á við efnahagsvandann með eigin stefnu eða hvort hún líti til ESB sem lausnar á þeim vanda sem blasir við. Íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á efnahagsstefnu landsins og það er verkefni þeirra að ná tökum á verðbólgu, vöxtum og atvinnuástandi. Slík verkefni verða ekki leyst með því einu að vísa til mögulegrar aðildar að ESB. Forsætisráðherra benti einnig á í aðdraganda kosninga að aðild að ESB sé aðeins raunhæft verkefni ef víðtæk samstaða ríki í samfélaginu. Hún sagði slík skref þurfa stuðning breiðs hóps, ekki aðeins í stjórnmálum heldur einnig meðal atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar, svo dæmi séu tekin. Sú samstaða er ekki til staðar. Skoðanir innan atvinnulífs og verkalýðshreyfingar eru áfram skiptar og nýlegar kannanir sýna vaxandi andstöðu við Evrópusambandi, sér í lagi innan Samtaka iðnaðarins. Því er rétt að spyrja hvort tímabært sé að leggja svo mikla áherslu á Evrópusambandsumræðu á meðan slíkur ágreiningur er enn til staðar í samfélaginu. Mikilvægast er að ríkisstjórnin sýni í verki að hún hafi skýra sýn á hvernig eigi að takast á við efnahagsvandann hér og nú. Það voru nú kosningaloforðin. Áður en farið er lengra í umræðu um mögulega aðild að Evrópusambandinu þarf fyrst og fremst að svara þeirri spurningu hvort stjórnvöld treysti sér til að rétta stöðu efnahagsmála með eigin stefnu og aðgerðum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkurinn Evrópusambandið Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar