Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Birgir Olgeirsson skrifar 11. mars 2026 12:44 Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir hafa sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Kjartan segist vita til þess að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni, muni víkja þeim úr ráðum og nefndum. Vísir/Samsett Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir munu stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja í út kjörtímabilið. Þau munu þó líta á sig sem borgarfulltrúa Miðflokksins í ræðu og riti. Það liggur fyrir að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins mun víkja þeim úr ráðum og nefndum.
Kjartan og Marta voru kosin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en sögðu sig nýverið frá flokknum eftir að ekki var óskað eftir frekari kröftum þeirra í forystu borgarstjórnarflokksins. Þau tilkynntu síðar meir að þau væru gengin til liðs við Miðflokkinn. Ríkisútvarpið hefur það eftir heimildum að þeim Kjartani og Mörtu verði vikið úr öllum ráðum og nefndum í borginni sem þau sátu í fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Kjartan staðfestir þetta í samtali við Vísi. „Við vitum að það vakir fyrir oddvita Sjálfstæðisflokksins að taka okkur úr ráðum og nefndum,“ segir Kjartan. Hann útskýrir að Miðflokkurinn sé ekki með kjörinn borgarfulltrúa, þess vegna geti þau ekki setið formlega í borgarstjórn í umboði Miðflokksins og verði því að stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja í út kjörtímabilið. „Við höldum áfram að leggja fram tillögur í ráðum og nefndum og munum óska eftir að fá áheyrnaraðild í nokkrum nefndum eins og dæmi eru um. Þar getum við haldið áfram okkar málflutningi,“ segir Kjartan. Hann segir tilfinninguna að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn eftir margra ára veru þar tregablandna. „Og ekkert auðvelt í sjálfu sér. Þar á ég marga góða vini og kunningja sem maður hefur unnið vel með og vona að þannig verði það áfram. Ég óska Sjálfstæðisflokknum velfarnaðar.“ Hildur Björnsdóttir sagði í samtali við Vísi í gær rík hefði væri fyrir því að þegar borgarfulltrúar skipti flokka þá yrðu þeir ekki í nefndum fyrir gamla flokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri Sjá meira