Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Þórarinn Þórarinsson skrifar 12. mars 2026 06:47 Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, segir því miður koma fyrir að sjúklingar geti hreinlega ekki staðið undir kostnaði við þyngdarstjórnarmeðferðir. Vísir/arnar Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, segir kostnaðinn sem fylgi þyngdarstjórnunarúrræðum sem nú standi til boða því miður reynast sumum ofviða. Þá sé eðlismunurinn á þyngdarstjórnunarlyfjum slíkur að ekki geti allir stokkið á ódýrustu lausnina í þeim efnum. „
Okkur þykir alltaf mjög sorglegt þegar fólk hefur ekki efni á meðferð við langvinnum sjúkdómum,“ segir Erla Gerður og bætir við að fólk sé vitaskuld flest þakklátt fyrir að til sé þyngdarstjórnunarmeðferð sem virkar. „En þessi meðferð sem við höfum í dag er bara of dýr fyrir suma og þeir ráða hreinlega ekki við kostnaðinn.“ Vísir hefur áður fjallað um gríðarlegan mun á verði Saxenda, dýrasta þyngdarstjórnunarlyfsins hér á landi, og Qsiva, þess ódýrasta. Saxenda er stungulyf rétt eins og mest notaða lyfið á Íslandi, Wegovy. Qsiva er hins vegar í töflum. Appelsínur og epli Erla Gerður bendir á að í samanburði séu töflurnar og innstungulyfin eins og epli og appelsínur og málið síður en svo það einfalt að öll þau sem þurfi á þyngdarstjórnunarlyfjum að halda geti stokkið á ódýrasta kostinn.„Þetta eru gjörólík lyf og fara inn í þyngdarstjórnunarkerfi á mjög ólíkum stöðum þótt báðar tegundir leiði til þess að hægt er að hjálpa líkamanum að léttast.Það er bara frábært að við getum farið inn í þyngdarstjórnunarkerfið okkar á mörgum stöðum enda er það gríðarlega margþætt og flókið. Sem betur fer er líka verið að þróa miklu fleiri lyf með miklu breiðari viðtaka en þessar tvær gerðir sem við höfum í dag,“ segir Erla Gerður. Læknisfræði ofar efnahag „Best væri auðvitað að fjárhagur þyrfti ekki að stýra för þegar maður er að velja rétta meðferð við alvarlegum sjúkdómi og það er frábært að hafa kost á mismunandi verkfærum, mismunandi lyfjum. Þannig að þegar einstaklingur óskar eftir aðstoð við að léttast með lyfjameðferð þarf auðvitað bara að skoða heilsuna og líkamsástandið vel. Hvað er að trufla þyngdarstjórnunarkerfin? Tengist þetta frekar efnaskiptakerfunum, insúlíni og blóðsykurbreytingum? Eða er þetta meira sjálf þyngdin sem er að valda álagi á líkamann? Hvernig kom þetta til? Hvað varð til þess að líkaminn þyngdist? Hvað hefur verið reynt?“Erla Gerður segir að þegar búið sé að skoða blóðprufur og fara vandlega yfir heilsufarssögu sé metið hvaða lyfjameðferð eigi best við í hverju tilfelli. Valið verði vitaskuld að byggja á læknisfræðilegum forsendum óháð lyfjakostnaðinum.„En auðvitað er gott að eiga kost á að nota lyf sem eru ekki gríðarlega dýr og ég bind vonir við að þróunin verði þannig áfram.“ Of ströng skilyrði Undanfarin ár hefur orðið alger sprenging í eftirspurn eftir þyngdarstjórnunarlyfjum á Íslandi. Árið 2019 var tæplega 1.700 einstaklingum ávísað slíkum lyfjum með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Um 8 þúsund manns fengu lyfjum af þessu tagi ávísað 2023 og um 4000 til viðbótar tóku lyfin án þess að uppfylla skilyrði um greiðsluþátttöku. Síðan þá hafa reglur um niðurgreiðslu verið hertar verulega og nú greiða um 94% sjúklinga lyfin úr eigin vasa. „Ég hef látið hafa það eftir mér áður, og stend við það, að mér þykir þessi greiðsluþátttaka háð alltof ströngum skilyrðum,“ segir Erla Gerður. „Í fyrsta lagi hverjir fá lyfið og síðan hvað þurfi að gera til þess að viðhalda greiðsluþátttökunni.“Erla Gerður segir að ofan á þetta bætist að niðurgreiðslan er háð tímatakmörkunum. „Þannig að við þurfum að endurskoða þessa greiðsluþátttöku. Það er alveg skilningur á því og þetta er meðal þess sem heilbrigðisráðherra setti fram í þessum nýju tillögum um hvað þurfi að gera varðandi meðferð offitu á Íslandi og vonandi fer sú vinna í gang fljótlega.“
Þyngdarstjórnunarlyf Lyf Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Neytendur Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira