Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þórarinn Þórarinsson skrifar 12. mars 2026 09:00 Gísli Marteinn stefnir ótrauður á skjáinn á föstudagskvöld eftir að hafa legið óvinnufær með lungnabólgu ofan í þá skæðu umgangspest sem hefur geysað undanfarið. RÚV „Það styttist samt í upprisu,“ segir Gísli Marteinn Baldursson sem, með hjálp sýklalyfja, er að hrista af sér flensu og lungnabólgu sem hafa í sameiningu haldið honum í tvær vikur fjarri góðu sjónvarpsgamni í spjallþættinum sem við hann er kenndur á Rúv. „
Ég er meðhöndlaður við lungnabólgu og það er það sem hefur virkað,“ segir Gísli Marteinn sem telur líklegast að fyrst hafi flensan skæða sem þessi dægrin vomir yfir samfélaginu hafi lagt hann í upphafi og hann síðan fengið lungnabólgu ofan í hana.„Ég er búinn að heyra frá fullt af fólki að þessi pest sé bara mjög svæsin en eftir að hitinn fór niður hjá mér og rauk svo aftur upp þá hugsuðum við að það væri sennilega komin einhver önnur sýking þarna líka,“ segir Gísli sem þurfti því bæði að kljást við inflúensuna og vinna síðan á lungnabólgu með sýklalyfjum. Þótt auðheyrt sé á málrómnum að Gísli Marteinn hafi enn ekki jafnað sig að fullu segir hann ekkert standa til annað en að mæta til leiks í Vikuna sína á föstudagskvöld. Vikan með Berglindi Festival „Kannski er röddin bara svona því ég hef talað svo lítið síðasta hálfa mánuðinn og þarf að koma talfærunum í gang aftur,“ segir hann og bregður sér hvorki við tveggja vikna messufall, sár né bana. Þótt hann hafi verið hálfmeðvitundarlaus á köflum segir hann veikindin þó ekki hafa slegið hann alveg út af laginu. „Ég hef verið í fjarvinnu og meira að segja þegar ég var sem slappastur náði ég svona aðeins að vera með.Þannig að við unnum þetta bara í samvinnu og síðan stóð Berglind sig náttúrlega með prýði,“ segir hann um samstarfskonu sína, Berglindi Festival, og bætir aðspurður við að þeim hafi þótt liggja beinast við að hún stykki í skarðið. Fyrstu pestarforföllin Gísli Marteinn segir að þetta fyrsta skiptið á löngum ferli sem veikindi haldi honum frá skjánum. „Þetta er í fyrsta skiptið sem ég er lasinn og get ekki mætt. Einu sinni var ég í uppskurði, sennilega á öðru ári þáttarins, og var bara uppdópaður og gat ekki stýrt þættinum. En nú horfir þetta allt til betri vegar.“ Frá uppskurði og lyfjamóki berst talið eftir krókaleið að yfirvofandi borgarstjórnarkosningum og hvort þær liggi þungt á honum með tvo góða félaga og vini, Rúnar Frey Gíslason og Pétur Marteinsson, í baráttunni um atkvæðin. Rúnar Freyr fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Pétur fyrir Samfylkinguna.„Nei. Hún gerir það ekki. Nei, nei, nei, nei. Ég fylgist bara með af hliðarlínunni,“ segir Gísli Marteinn og hokinn af reynslu sé hann alls ekkert að setja sig í stellingar Njáls á Bergþórshvoli gagnvart hvorki Rúnari Frey né Pétri.„Nei, nei, nei. Alls ekki enda ekki taðskegglingur.“
Bíó og sjónvarp Heilbrigðismál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira