Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga Lovísa Arnardóttir skrifar 11. mars 2026 16:32 Ásdís segir hafa verið ákall frá bæjarbúum um nýtt bókasafn og bæjarstjórn sé nú að svara því ákalli. Vísir/Vilhelm og Arnar Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára.
Fjallað var um það á Vísi fyrr í dag að bæjarstjórn hafi veitt heimild í gær til undirritunar leigusamnings við fasteignafélagið Heima um Vetrargarðinn svokallaða. Samningurinn hefur verið harðlega gagnrýndur af minnihluta bæjarins og var samkvæmt fundargerð bæjarstjórnar nokkuð tekist á um málið á fundi þeirra þann 5. mars. „Hér er verið að blanda saman heildarrekstrarkostnaði, sem innifelur auðvitað laun starfsfólks og allt sem felst í því að reka menningarmiðstöð og bókasafn. Það er viljandi verið að teikna upp þá mynd að þetta sé leiguverðið í heild. Það er rangt og ómaklegt af bæjarfulltrúum að halda því fram vitandi betur og mér finnst það alvarlegt.“ Ásdís segir þetta ódýra pólitík. Fyrir Kópavogsbúa sé um hagstæðan samning að ræða í hlutfalli við allt sem þau reka. „Auðvitað er það í ljósi sérstöðu okkar sem sveitarfélag að við tryggðum að hér væri um hagstæðan samning að ræða.“ Stórkostlegt framfaraskref fyrir íbúa Ásdís segir mikilvægt í þessu samhengi að ræða um hversu stórkostlegt framfaraskref sé að ræða fyrir unga sem aldna í Kópavogi. „Það hefur verið gríðarlega mikið ákall, bæði á svæðunum í kringum Smáralindina en líka í efri byggðum um að byggja upp menningarinnviði og bókasafn. Nú erum við loks að svara þessu ákalli,“ segir Ásdís og að með nýju bókasafni sé aðgengi barna tryggt að góðu og fjölbreyttu lesendi. Það skipti verulegu máli með tilliti til þróunar læsis barna. „Þetta er ótrúlega jákvætt skref sem við erum að stíga en mér finnst mikilvægt ef við ætlum að vera í pólitík að við stígum fram með réttar forsendur,“ segir Ásdís og að þessi tala sem bæjarfulltrúinn nefni fyrir leiguna sé röng. Hvað varðar fullyrðingar bæjarfulltrúa um að Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, sé ánægður með Ásdísi segir Ásdís að hún sé bæjarstjóri Kópavogsbúa og að hennar hlutverk sé fyrst og fremst að standa vörð um þeirra hagsmuni. „Það hef ég verið að gera öll þessi ár, á þessu kjörtímabili og í þessu verkefni. Það hefur verið ákall frá íbúum í þessum hverfum um uppbyggingu menningarinnviða og við erum að gera það núna. Við viljum byggja upp menningarmiðstöð í Smáralind því á hverju ári koma þangað um fimm milljónir manna,“ segir Ásdís og að meirihluti þeirra séu Kópavogsbúar. Vilji fresta því það sé stutt í kosningar „Við erum að styrkja svæðið og þetta verður ákveðinn segull fyrir þá íbúa sem búa þarna,“ segir Ásdís og að grunnskólabörn á svæðinu muni njóta góðs af því að þarna verði að finna nútímalegt bókasafn. Ásdís hafnar sömuleiðis ásökunum minnihlutans um að það sé verið að gera þetta í flýti. „Þau vilja fresta málinu vegna þess að það er stutt í kosningar. Það er búið að undirbúa þetta mál mjög vel. Það er búið að gera þarfagreiningar og áætlanir. Við höfum verið að undirbúa þetta verkefni í þó nokkurn tíma með starfsfólki okkar í menningarhúsunum.“ Auk þess furðar Ásdís sig á andstöðu minnihlutans í bæjarstjórn þegar allir fulltrúar, minni- og meirihluti, í mannlífs- og menningarnefnd bæjarins sem ber ábyrgð á málaflokknum samþykktu það og studdu það. „Við erum með fullan stuðning frá ráðinu sem fer með þennan málaflokk og okkar mat er að málið sé vel undirbúið. Við teljum þetta jákvætt skref fyrir Kópavogsbúa og að um hagstæðan samning sé að ræða.“
Kópavogur Bókasöfn Börn og uppeldi Eldri borgarar Smáralind Læsi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Sjá meira