Erlent

Fjórir dánir eftir að her­flug­vél brot­lenti í Írak

Samúel Karl Ólason skrifar
KC-135 eldsneytisvélarnar eru einhverjar þær mest notuðu í herflugvélaflota Bandaríkjanna en slys eru þrátt fyrir það sjaldgæf.
KC-135 eldsneytisvélarnar eru einhverjar þær mest notuðu í herflugvélaflota Bandaríkjanna en slys eru þrátt fyrir það sjaldgæf. AP/Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna

Fjórir af sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael.

Fjöldi Bandaríkjamanna sem hafa dáið í tengslum við stríðið gegn Íran er því kominn í að minnsta kosti ellefu.

Í yfirlýsingu frá yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) segir að björgunarstörf séu enn yfirstandandi og tildrög slyssins til rannsóknar. Þó sé ljóst að flugvélin hafi ekki verið skotin niður.

Myndir af flugvélinni sem lent var í Ísrael sýna að hún hlaut skemmdir á stéli.

Flugher Bandaríkjanna á fjölda KC-135 eldsneytisvéla og þær eru mikið nýttar til að fylla á tanka herþota og annarra flugvéla í háloftunum yfir átakasvæðum og við að ferja flugvélar milli heimshluta.

Þrátt fyrir að þetta séu einhverjar mest notuðu flugvélar Bandaríkjamanna og flestar orðnar tiltölulega gamlar eru slys sem þessi mjög sjaldgæf. Samkvæmt New York Times varð síðasta slysið með KC-135 árið 2013 en þá dóu þrír þegar flugvél hrapaði skömmu eftir flugtak í Afganistan.

Þetta er fjórða herflugvélin sem Bandaríkjamenn missa síðan stríðið hófst. Hinar þrjár voru allar F-15 Strike Eagle herþotur sem skotnar voru niður af flugmanni frá Kúveit á F/A-18 Hornet, að virðist fyrir mistök.


Tengdar fréttir

Bandarísk herflugvél fórst í Írak

Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×