Innlent

Holta­vörðu­heiði var lokað vegna slyss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Minni háttar skemmdir sjást á bílnum.
Minni háttar skemmdir sjást á bílnum. Aðsend

Búið er að opna Holtavörðuheiði að nýju eftir að henn ihafði verið lokað vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Lokunin varði í um klukkustund en á meðan var hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. 

Á  fimmta tímanum er greint frá því að vegurinn um Súðavíkurhlíð hefði verið opnaður á ný, en áfram væri þar óvissustig vegna snjóflóðahættu. Þá benti veðurfræðingur Vegagerðarinnar á að vestan hríðarveður og blint verði í Vatnsskarði og á Öxndalsheiði í nótt, og búast megi við hviðu yfir 35 metrum á sekúndu í vestanverðum Eyjafiðri. Lægja myndi snemma í fyrramálið og stytta upp um hádegi á morgun.

Á Austurlandi er krapi og skafrenningur á Fjarðarheiði. Hálka og skafrenningur er á flestum leiðum og eitthvað er um hálkubletti, en snjóþekja er á Vatnsskarði eystra. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Hreindýr eru mjög víða á svæðinu frá Almannaskarðgöngum að Djúpavogi og eru vegfarendur hvattir til að aka varlega. Varað er við því að holur hafa myndast mjög víða í vegum á svæðinu

Frá vettvangiAðsend

Heilmikil verkefni í gær og í morgun

Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær.

Flutningabíll sat fastur fyrir hádegi í svokallaðri Hæðarsteinsbrekku og í nokkurn tíma komst ekkert farartæki fram hjá honum.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Veistu meira um málið eða náðir ljósmyndum á vettvangi? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×