Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Kjartan Kjartansson skrifar 16. mars 2026 11:30 Vestmannaeyjabær auglýsti rekstur heilsuræktar öðru sinni í febrúar. Útboðið hefur nú verið kært, líkt og það fyrra. Vísir/Vilhelm Hópur sem sóttist eftir að reka heilsuræktarstöð í Vestmannaeyjum er sagður hafa kært nýtt útboð bæjarins á rekstrinum. Bærinn réðst í nýtt útboð eftir að kærunefnd taldi hann hafa staðið rangt að upphaflegri auglýsingu eftir rekstraraðila og að hann væri bótaskyldur.
Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar gekk til viðræðna við líkamsræktarstöðvakeðjuna World Class í apríl í fyrra eftir að auglýst var eftir aðlum sem væru áhugasamir um að reka og byggja upp heilsurækt við húsnæði Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja. Hópur fólks með reynslu af slíkum rekstri sem lagði fram tilboð kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu í desember að bærinn hefði ekki staðið rétt að útboðinu með því að bjóða stöðina ekki út sem sérleyfissamning á EES-svæðinu. Felld hún úr gildi ákvörðun bæjarins um að ganga til samninga við World Class og gerði bænum að auglýsa reksturinn aftur til útboðs. Þá viðurkenndi nefndin skaðabótaskyldu bæjarins gagnvart hópnum sem kærði útboðið. Nú segja Eyjafréttir að hópurinn sem kærði upphaflega útboðið hafi nú kært nýja útboðið sem bærinn auglýsti í febrúar. Deilir hópurinn á skilyrði í útboðinu sem hann telur svo íþyngjandi að hann takmarki verulega samkeppni. Ekki náðist strax í fulltrúa hópsins sem kærði útboðið við vinnslu fréttarinnar. Sem sérsniðið að World Class Vestmannaeyjabær setur það sem skilyrði í útboðinu að bjóðendur hafi að lágmarki milljarð króna í eigið fé og fimm þúsund virka notendur í það minnsta. Þá er það talið bjóðendum til tekna að vera með rekstur á nokkrum stöðum á landinu. Skilyrðin virðast þannig sérsniðin að World Class. Eyjafréttir sögðu frá þessum skilyrðum útboðsins í byrjun mars. Í kjölfarið óskaði Vísir eftir útboðsgögnunum frá Vestmannaeyjabær. Bærinn vísaði á fyrirtækið Consensa sem sér um útboðið. Þegar Vísir óskaði eftir gögnunum frá Consensa fengust þau svör að það væri endurgjaldslaust að stofna aðgang að útboðskerfi fyrirtækisins. Þegar blaðamaður benti á að aðeins væri hægt að skrá fyrirtæki fyrir aðgangi og ítrekaði ósk um að fá útboðsgögnin hætti fulltrúi fyrirtækisins að svara tölvupósti. Vestmannaeyjabær svaraði heldur ekki tölvupósti þar sem óskað var eftir gögnunum í ljósi þess að þau fengjust ekki frá Consensa. Þá var ekki svarað í almennu símanúmeri Vestmannaeyjabæjar, hvorki á fimmtudag né föstudag. World Class óskaði eftir viðræðunum Upphaflega útboðið á heilsuræktinni var auglýst tveimur mánuðum eftir að bæjarráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti beiðni forstjóra World Class um viðræður um rekstur líkamsræktarstöðvar. World Class hefur rekið líkamsræktaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni í Eyjum frá því í júní á grundvelli bráðabirgðasamnings við bæinn. Tók fyrirtækið við rekstrinum af félaginu Hressó.
Vestmannaeyjar Líkamsræktarstöðvar Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Sjá meira