Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 14:06 Bjarni Guðjónsson (t.v.) og Brynjar Níelsson (t.h.) ruddu þeim Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur úr efstu sætum á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Nú taka þeir sæti þeirra í stjórnum hlutafélaga á vegum borgarinnar. Vísir Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að tilnefna Brynjar Níelsson og Bjarna Guðjónsson í stjórnir hlutafélaga borgarinnar í stað tveggja borgarfulltrúa sem hættu nýlega í flokknum. Bjarni og Brynjar eru á framboðslista flokksins sem sitjandi borgarfulltrúarnir komust ekki á.
Borgarstjórn samþykkti að víkja Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur úr nefndum og ráðum samkvæmt tillögu Sjálfstæðisflokksins í gær. Þau hættu í Sjálfstæðisflokknum og sögðust gengin í Miðflokkinn fyrr í þessum mánuði eftir að hvorugt þeirra hlaut náð fyrir augum fulltrúaráðs flokksins sem stillti framboðslista upp fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí. Nú hefur Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, lagt fram tillögu um að Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þriðji maður á nýjum lista flokksins, taki sæti Mörtu í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða, og að Bjarni, annar maður á listanum, taki sæti Kjartans í stjórn Félagsbústaða. Breytingarnar eiga að ganga í gegn á aukaaðalfundum hlutafélaganna tveggja sem fara fram á næstu vikum. Samkvæmt heimildum Vísis hefur borgarráð þegar samþykkt hrókeringarnar. Óreiða og illdeilur hjá Félagsbústöðum Bjarna bíður sérstaklega ærinn starfi í stjórn Félagsbústaða. Minnihlutinn í borgarstjórn hefur deilt harðlega á fjárhagsstöðu félagsins en borgaryfirvöld samþykktu að veita 2,4 milljörðum króna næstu fimm árin í janúar. Þá hefur styr staðið um Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Félagsbústaða. Allt almennt starfsfólk félagsins lýsti yfir vantrausti á hana í fyrra eftir uppákomu þar sem hún sagði starfsmanni upp fyrir allra augum á skrifstofunni. Stjórn Félagsbústaða ákvað að fela Sigrúnu sjálfri að leiða umbótastarf í kjölfarið. Rúmur helmingur starfsmanna Félagsbústaða hefur nú hætt störfum þar síðasta eina og hálfa árið. Formaður stéttarfélagsins Sameykis lýsti yfir alvarlegum áhyggjum af mannauðsmál Félagsbústaða í bréfi til stjórnarinnar í vetur. Róstursamt hefur einnig verið innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna á undanförnum vikum. Auk Kjartans og Mörtu hætti Helgi Áss Grétarsson, fyrsti varaborgarfulltrúi flokksins, og gekk til liðs við Miðflokkinn í febrúar. Vegna laga um fyrsta varaborgarfulltrúa er Helgi Áss enn kallaður inn sem varamaður ef einhver sjálfstæðismanna forfallast. Hann hefur þannig setið tvo fundi borgarstjórnar frá því að hann hætti í Sjálfstæðisflokknum. Þau Helgi Áss, Kjartan og Marta tilkynntu borgarstjórn í síðustu viku að þau hygðust vinna saman sem óháðir borgarfulltrúar það sem eftir lifir kjörtímabilsins.
Borgarstjórn Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira