Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 17:52 Mexíkóskir hermenn standa vörð við kirkjugarðinn þar sem El Mencho var jarðaður fyrr í þessum mánuði. Stjúpsonur hans er sagður hafa tekið við stjórnartaumunum af glæpasamtökum hans en sá er bandarískur ríkisborgari. EPA/Francisco Guasco Bandarískur ríkisborgari virðist hafa tekið stjórn á öflugustu glæpasamtökum Mexíkó. Juan Carlos Valencia González mun hafa tekið fljótt við stjórn Jalisco New Generation Cartel, eða JNGC, stundum CJNG, eftir að sjúpfaðir hans Nemesio Oseguera Cervanter, eða „El Mencho“, var felldur af hermönnum í Mexíkó í síðasta mánuði.
Valencia González fæddist í Kaliforníu í Bandaríkjunum og hefur því bandarískan ríkisborgararétt en það gæti mögulega flækt viðleitni Bandaríkjanna til að sporna gegn umsvifum samtaka eins og JNGC í Mexíkó og víðar í Mið- og Suður-Ameríku. Samkvæmt frétt Wall Street Journal er Valencia González 41 árs gamall og tók hann við stjórnartaumunum nánast um leið og El Mencho var jarðaður í gylltri kistu í upphafi mars. El Mencho var gífurlega valdamikill í Mexíkó og víðar, eftir að hafa nýtt sér tómarúm sem myndaðist eftir blóðuga baráttu innan Sinaloa-samtakanna víðfrægu. Embættismenn í Bandaríkjunum höfðu lýst honum sem valdamesta fíkniefnabaróni heimsins. Sjá einnig: Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Hann fannst í febrúar þegar hann var að heimsækja kærustu sína á leynilegum stað en þá höfðu Mexíkóar og Bandaríkjamenn verið að fylgjast með henni. Hann var skotinn til bana í átökum milli hans og lífvarða hans við hermenn. El Mencho var jarðarður í gylltri líkkistu.EPA/Francisco Guasco Mexíkóar höfðu borið kennsl á áðurnefnda kærustu El Mencho og grunaði að hún væri að fara að hitta hann. Yfirvöld Í Mexíkó báðu forsvarsmenn Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) um að njósnadróna yrði flogið yfir svæðið og mun hann hafa verið notaður til að finna El Mencho. Nokkrum klukkustundum síðar réðust sérsveitarmenn úr her Mexíkó til atlögu og felldu El Mencho og átta lífverði hans. Eftir það brugðust meðlimir JNGC reiðir við og ollu töluverðum usla í Mexíkó. Ófremdarástandið varði þó tiltölulega stutt og mun Valencia González hafa tekið völdin innan JNGC. Mega hvorki njósna um né fella bandarísk ríkisborgara Það að Valencia González sé bandarískur ríkisborgari gerir bandarískum leyniþjónustum erfiðara fyrir að njósna um hann og safna upplýsingum um hann. Verulegar takmarkanir eru á slíkri starfsemi gagnvart bandarískum ríkisborgurum samkvæmt þarlendum lögum. Juan Carlos Valencia González.DEA Yfirvöld þyrftu bæði að fá samþykki dómsmálaráðherra og sannfæra dómara sérstaks dómstóls um að Valencia González starfaði á vegum erlends afls, eins og hryðjuverkasamtaka. Þar gæti þó hjálpað til að ríkisstjórn Trumps hefur skilgreint JNGC og önnur alþjóðleg glæpasamtök sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna sem hryðjuverkasamtök. Þá meina bandarísk lög yfirvöldum einnig að fella bandaríska ríkisborgara í loftárásum án dóms og laga. Slíkt hefur nokkrum sinnum gerst í gegnum árin. Frægt dæmi er frá forsetatíð Baracks Obama þegar Anwar al-Aqlaki, háttsettur meðlimur al-Qaeda, sem fæddist í Nýju Mexíkó, var felldur í loftárás. Þá hefur bandaríski herinn fellt að minnsta kosti 150 meinta fíkniefnasmyglara í loftárásum á Kyrra- og Karíbahafinu á undanförnum mánuðum. Þau dráp hafa verið kölluð morð án dóms og laga. Trump-liðar eru sagðir hafa farið fram á það við yfirvöld í Mexíkó að fá að gera loftárásir þar og jafnvel senda hermenn en þeim kröfum hefur verið hafnað. Á nýlegum fundi sem haldinn var um öryggisverkefnið „Skjöldur Ameríkananna“ lýsti Stephen Miller, náinn og áhrifamikill ráðgjafi Trumps, að ekki væri hægt að sigra glæpasamtök í Mexíkó og Mið- og Suður-Ameríku gegnum réttarkerfi og með störfum lögreglu. Nauðsynlegt væri að beita hervaldi. Hann sagði, samkvæmt frétt WSJ, að eina leiðin væri að brjóta þessi samtök á bak aftur „eins og við gerðum með al-Qaeda og ISIS með oddi mjög banvæns spjóts“. Leiddi sérsveitir JNGC Faðir Valencia González heitir Armando Valencia Cornelio. Hann var stofnandi Milenio-samtakanna á áttunda áratug síðustu aldar og gekk undir nafninu „Maradonna“. Móðir hans heitir Rosalinda González Valencia, en hún spilaði lykilhlutverk í samtökum sem kölluðustu Cuinis. Þau samtök gengu inn í JNGC á árum áður og eru talin hafa spilað stóra rullu í velgengni El Mencho síðan þá. Yfirvöld í Mexíkó hafa lýst Valencia Gonzáles sem mjög ofbeldisfullum manni. Hann var einn af leiðtogum sérsveita JNGC-samtakanna en þær sveitir eru búnar vel þjálfuðum og þungvopnuðum mönnum og börðust gegn meðlimum annarra glæpasamtaka um bestu yfirráðasvæðin og smyglleiðir í Mexíkó. Bandaríkjamenn hafa heitið fimm milljónum dala fyrir upplýsingar sem leiða til handtökum Valencia González.
Mexíkó Erlend sakamál Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira