Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng Kristján Már Unnarsson skrifar 19. mars 2026 20:20 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á fundi þingnefndarinnar í morgun. Vilhelm Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir ástæðu sex ára jarðgangastopps vera þá að síðasta ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til þess að fara í Fjarðarheiðargöng vegna gríðarlegs kostnaðar. Hann segir Vegagerðina telja að framkvæmdir við Fljótagöng geti hafist sumarið 2027.
Í fréttum Sýnar kom fram að innviðaráðherra ítrekaði á fundi með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun að náttúruvá réði mestu um þá stefnumörkun að Fljótagöng til Siglufjarðar verði næstu jarðgöng á Íslandi. Fyrri yfirlýsing ráðherrans um að hægt verði að byrja á Fljótagöngum fyrir lok þessa árs stenst þó ekki. „Vegagerðin hefur upplýst núna að það ætti að vera hægt að byrja framkvæmdir um sumarið 2027,“ sagði ráðherrann á fundi þingnefndarinnar. Jarðgöng milli Fljóta og Siglufjarðar yrðu 5,2 kílómetra löng. Vegagerðin telur unnt að hefja framkvæmdir sumarið 2027.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Framsóknarmaðurinn Þórarinn Ingi Pétursson vildi nánari skýringar á því hvers vegna Fjarðarheiðargöngum til Seyðisfjarðar hefði verið ýtt til hliðar. Ráðherrann spurði á móti: „Það er mikilvægt að kannski háttvirtur þingmaður geti þá spurt sig að því: Afhverju var ekki farið í nein göng frá árinu 2020? Afhverju voru ekki covid-peningar notaðir í Fjarðarheiðargöng? Afhverju var ekki samgönguáætlun samþykkt 2023 af síðustu ríkisstjórn? Ég held það, það er mín skoðun, ég tel að það hafi verið vegna þess að síðasta ríkisstjórn treysti sér ekki að fara í Fjarðarheiðargöng. Ég tel að það sé þá kostnaðurinn, gríðarlega fjárfrek framkvæmd, sem að menn treystu sér þá ekki að fara í. En þú getur bara spurt þá samflokksmenn þína um það,“ sagði Eyjólfur Ármannsson. Ráðherrann sagði heildstætt þjóðhagslegt mat liggja að baki þeirri ákvörðun að setja Fjarðagöng framar Fjarðarheiðargöngum. „Ég ítrekað spurði að þessu fyrir austan í ágústmánuði: Hver eru þjóðhagslegu rökin fyrir því að taka Fjarðarheiðargöng fram yfir Fjarðagöng? Ég fékk því miður ekki svar, skýrt svar við því.“ Frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun.Vilhelm Hann sagði Fjarðagöng rjúfa vetrareinangrun Seyðisfjarðar með láglendisvegi til suðurs. „Samhliða því að það er mun meiri samfélagslegur ábati af þeim göngum. Það er styttra til stærsta vinnustaðarins. Það er styttra á héraðssjúkrahúsið, Verkmenntaskólann og svo opnast Mjóifjörðurinn bæði fyrir atvinnustarfsemi, fiskeldi, og svo líka mögulegri byggð þá,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Hér má sjá fundinn í heild:
Jarðgöng á Íslandi Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Samgönguáætlun Tengdar fréttir Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. 19. mars 2026 12:10 Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. 17. mars 2026 21:41 Mjófirðingar í skýjunum og sjá fjörðinn sinn rísa á ný „Mjófirðingar og allir sem hafa einhverja tengingu við Mjóafjörð eru náttúrulega bara í skýjunum. Þetta breytir hreinlega öllu fyrir Mjóafjörð. Núna mun hann rísa úr ösku sinni og verða aftur að byggilegum stað innan fjórðungsins,“ segir Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um breytta forgangsröðun jarðganga. 4. desember 2025 22:30 Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. 19. mars 2026 12:10
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. 17. mars 2026 21:41
Mjófirðingar í skýjunum og sjá fjörðinn sinn rísa á ný „Mjófirðingar og allir sem hafa einhverja tengingu við Mjóafjörð eru náttúrulega bara í skýjunum. Þetta breytir hreinlega öllu fyrir Mjóafjörð. Núna mun hann rísa úr ösku sinni og verða aftur að byggilegum stað innan fjórðungsins,“ segir Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um breytta forgangsröðun jarðganga. 4. desember 2025 22:30
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. 3. desember 2025 21:10