Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. mars 2026 21:35 Þrír dagar eru þangað til frumsýna átti nýja þáttaröð The Bachelorette með Taylor Frankie Paul, raunveruleikastjörnu og áhrifavald, í aðalhlutverki. AP Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. Paul er best þekkt fyrir hispurslausa framkomu sína sem aðalstjarna raunveruleikaþáttanna The Secret Lives of Mormon Wives auk þess sem hún hefur haslað sér völl sem áhrifavaldur í svokölluðum MomTok-kima samfélagsmiðilsins TikTok. Hún vakti mikla athygli árið 2022 þegar hún opnaði sig um að hafa stundað frjálsar ástir, þvert á strangar reglur mormónatrúarinnar en samkvæmt þeim er kynlíf utan hjónabands og neysla áfengis, tóbaks og koffíns meðal þess sem er bannað. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ birti í dag myndband frá 2023 af Paul standa í stimpingum við þáverandi sambýlismann sinn, Dakota Mortensen. Í myndbandinu sést hún meðal annars kasta stólum í Mortensen að barnungri dóttur hennar viðstaddri. Paul var handtekin og ákærð fyrir alvarlega líkamsárás og heimilisofbeldi vegna málsins. Lögreglan í Draper City í Utah hefur staðfest við People að embættið standi að rannsókn á Paul og Mortenson, sem varðar heimilisofbeldi. Varað er við efni myndbandsins að neðan. Frá því að myndbandið var birt hafa talsmenn Disney, sem á sjónvarpsstöðina ABC, staðfest að framleiðslu nýjustu þáttaraðar The Bachelorette, með Paul í aðalhlutverki, hafi verið hætt. Fyrirhugað var að sýna fyrsta þátt þáttaraðarinnar eftir þrjá daga. Viðskiptamiðillinn Forbes hefur eftir talsmönnum Paul að birting myndbandsins sé hluti af áralangri herferð sem snúist um að sverta mannorð hennar án tillits til dóttur Paul og fyrrverandi eiginmanns hennar. Myndbandið sé gamalt og algjörlega úr samhengi. Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Raunveruleikaþættir Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira
Paul er best þekkt fyrir hispurslausa framkomu sína sem aðalstjarna raunveruleikaþáttanna The Secret Lives of Mormon Wives auk þess sem hún hefur haslað sér völl sem áhrifavaldur í svokölluðum MomTok-kima samfélagsmiðilsins TikTok. Hún vakti mikla athygli árið 2022 þegar hún opnaði sig um að hafa stundað frjálsar ástir, þvert á strangar reglur mormónatrúarinnar en samkvæmt þeim er kynlíf utan hjónabands og neysla áfengis, tóbaks og koffíns meðal þess sem er bannað. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ birti í dag myndband frá 2023 af Paul standa í stimpingum við þáverandi sambýlismann sinn, Dakota Mortensen. Í myndbandinu sést hún meðal annars kasta stólum í Mortensen að barnungri dóttur hennar viðstaddri. Paul var handtekin og ákærð fyrir alvarlega líkamsárás og heimilisofbeldi vegna málsins. Lögreglan í Draper City í Utah hefur staðfest við People að embættið standi að rannsókn á Paul og Mortenson, sem varðar heimilisofbeldi. Varað er við efni myndbandsins að neðan. Frá því að myndbandið var birt hafa talsmenn Disney, sem á sjónvarpsstöðina ABC, staðfest að framleiðslu nýjustu þáttaraðar The Bachelorette, með Paul í aðalhlutverki, hafi verið hætt. Fyrirhugað var að sýna fyrsta þátt þáttaraðarinnar eftir þrjá daga. Viðskiptamiðillinn Forbes hefur eftir talsmönnum Paul að birting myndbandsins sé hluti af áralangri herferð sem snúist um að sverta mannorð hennar án tillits til dóttur Paul og fyrrverandi eiginmanns hennar. Myndbandið sé gamalt og algjörlega úr samhengi. Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717.
Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Raunveruleikaþættir Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira