David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Valur Páll Eiríksson skrifar 20. mars 2026 11:01 Jonathan David bendir á Hákon Arnar Haraldsson voru liðsfélagar hjá Lille en munu mætast í Toronto næstu helgi. Getty/Rico Brouwer Bandaríkjamaðurinn Jesse Marsch, þjálfari kanadíska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur opinberað landsliðshóp liðsins fyrir æfingaleiki við Ísland og Túnis í næstu viku.
Ein skærasta stjarna kanadíska liðsins, Alphonso Davies, sem leikur með Bayern Munchen, er enn frá vegna langvarandi meiðsla. Sá hefur vart spilað fótbolta síðustu tvö árin eða svo. Stephen Eustaqio, leikmaður Porto sem er á láni hjá Los Angeles FC í Bandaríkjunum, er einnig frá en sá hefur verið fastamaður í byrjunarliði Kanada að undanförnu. Jonathan David er stærsta stjarna kanadíska liðsins og mun leiða framlínu þess. David gerði það gott með Hákoni Arnari Haraldssyni hjá Lille áður en hann samdi við Juventus á Ítalíu síðasta sumar. Junior Hoilett, sem lék með Blackburn og QPR í ensku úrvalsdeildinni fyrir meira en áratug, er einnig í hópnum, 35 ára gamall. Hoilett leikur í dag með Swindon Town í ensku D-deildinni þessi dægrin. Hápressulið „Það þekkja allir Jesse Marsch [landsliðsþjálfara Kanada] og liðin hans, hann var hjá Red Bull og síðan Leeds. Þegar ég segi að þetta séu high octane lið þá meina ég það svo sannarlega. Þeir stíga á bensíngjöfina og fara all in,“ sagði Arnar Gunnlaugsson meðal annars um kanadíska liðið í samtali við Sýn í vikunni. Ísland mætir Kanada í Toronto næstu helgi, laugardaginn 28. mars, og mætir í kjölfarið liði Haíti miðvikudaginn 31. mars, einnig í Toronto. Íslenska landsliðshópinn má sjá hér en þann kanadíska að neðan. Kanadíski hópurinn Markverðir: Maxime Crepeau (Orlando City) Owen Goodman (Barnsley, á láni frá Crystal Palace) Dayne St. Clair (Inter Miami) Varnarmenn: Derek Cornelius (Rangers, á láni frá Marseille) Luc de Fougerolles (Dender, á láni frá Fulham) Richie Laryea (Toronto FC) Jahkeele Marshall-Rutty (New York Red Bulls) Kamal Miller (Portland Timbers) Ralph Priso (Vancouver Whitecaps) Niko Sigur (Hajduk Split) Joel Waterman (Chicago Fire) Miðjumenn: Ali Ahmed (Norwich City) Tajon Buchanan (Villarreal) Mathieu Choiniere (Los Angeles FC) Marcelo Flores (Tigres) Junior Hoilett (Swindon Town) Ismael Kone (Sassuolo) Liam Millar (Hull City) Jonathan Osorio (Toronto FC) Nathan Saliba (Anderlecht) Sóknarmenn: Jonathan David (Juventus) Daniel Jebbison (Preston, á láni frá Bournemouth) Cyle Larin (Southampton, á láni frá Mallorca) Tani Oluwaseyi (Villarreal) Bim Pepple (Plymouth) Jacen Russell-Rowe (Toulouse)
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Sjá meira